151. löggjafarþing — 62. fundur,  3. mars 2021.

viðbrögð við langvinnum heilsuvanda eftir COVID-19.

520. mál
[15:09]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Albertína Friðbjörg Elíasdóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og sömuleiðis þakka ég fyrir þessa mikilvægu athugasemd frá hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur. Endurhæfing skiptir ofboðslega miklu máli í allri meðferð. Ég held að því miður séum við of gjörn á að beita henni ekki, að vísa fólki ekki þá leið. Við þurfum að gera meira af því og við þurfum að efla endurhæfingu á allan hátt.

Herra forseti. Ástæðan fyrir þessari fyrirspurn er að ég hef því miður heyrt margar sögur af upplifun einstaklinga sem kljást við langtímaafleiðingar Covid-19 og að þeir séu ekki að fá skýr svör frá heilsugæslunni, þeir séu ekki að fá nægilegan stuðning. Nú voru Bretar að fara þá leið að koma á sérhæfðum móttökum þar sem teymi inni á heilsugæslunum sjá um að taka á móti einstaklingum sem glíma við þessi vandamál. Heilsugæslulæknar eru frábærir og vinna gríðarlega mikið starf og ég gefst ekki upp á að tala um mikilvægi heilsugæslunnar en það breytir því ekki að heilsugæslulæknar eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Þó að ég trúi því að þeir séu allir að gera sitt besta þá er það samt staðreynd að sumir virðast vera heppnir og eru með frábæra lækna sem leiða þá áfram í gegnum þetta á meðan aðrir virðast upplifa að reynslu þeirra sé hafnað. Það er ekki gott. Ef fólk er ekki að fá réttar upplýsingar og fær ekki framvísun þá er kerfið ekki að virka. Þess vegna held ég að það sé svolítið mikilvægt að ráðuneytið, og ég vona að ráðherra taki vel í það, (Forseti hringir.) skoði það að koma á samræmdari upplýsingum fyrir þessa einstaklinga.