viðbrögð við langvinnum heilsuvanda eftir COVID-19.
Virðulegi forseti. Ég er algjörlega sammála því sem kemur fram í síðari fyrirspurn hv. þingmanns, að mikilvægt sé að halda áfram að upplýsa framlínustarfsfólk okkar, lækna, hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk, um þessi einkenni, að vera vakandi fyrir þeim o.s.frv. Ég held að við þurfum að læra eins lengi og þessu vindur öllu saman fram. Það er líka mikilvægt að muna að langvinn áhrif eftir Covid geta verið af öðrum völdum en af sýkingunni sjálfri. Vísbendingar hafa komið fram um að faraldurinn hafi mismunandi áhrif á mismunandi hópa, líka eftir félagslegri stöðu og öðru slíku. Embætti landlæknis vaktar helstu áhrifaþætti heilbrigðis og þar er verið að fylgjast með heilsuhegðun, líðan o.s.frv. Þar þurfum við líka að vakta mjög mikið félagsleg áhrif Covid og þessi stóru áhrif sem tengjast andlegri líðan og þar með talið líkamlegri heilsu. Landspítali, Íslensk erfðagreining og Þróunarmiðstöðin hafa hafið rannsókn á langvinnum áhrifum Covid-19. Öllum sjúklingum sem greindust með Covid í fyrstu bylgju hefur verið boðin þátttaka í þeirri rannsókn sem er mjög mikilvægt af því að þá opnast gluggi til að segja frá. Rannsóknin Líðan þjóðar á tímum Covid er vísindarannsókn þar sem verið er að skoða þetta líka, auka þekkingu á faraldrinum og afla þekkingar á áhrifum á líðan og lífsgæði o.s.frv. En okkur skortir frekari innsýn í þessi óbeinu áhrif faraldursins. Nýjar rannsóknir sýna okkur að þetta getur aukið ójöfnuð í samfélaginu í heilsu, bæði til lengri og skemmri tíma. Að tillögu landlæknis hef ég þess vegna skipað tvo stýrihópa. Annar vaktar óbein áhrif Covid-19 á lýðheilsu en hinn hópurinn óbein áhrif á geðheilsu. Þessir stýrihópar eru skipaðir til 12 mánaða og munu halda utan um þetta. Þeim er ætlað að skila stöðuskýrslu ársfjórðungslega til að hægt sé að bregðast við ef ástæða þykir til. Þannig að ég tek undir erindi hv. þingmanns, það er mjög mikilvægt að gera vel, vera á tánum og læra á meðan þessu ferli vindur fram.