hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.
Herra forseti. Ég flyt hér nefndarálit með breytingartillögu með löngum titli, um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um mat á umhverfisáhrifum og lögum um loftslagsmál (niðurdæling koldíoxíðs). Það er styst frá því að segja að hv. umhverfis- og samgöngunefnd fékk til sín níu gesti og bárust fjórar umsagnir.
Af því að nefndarálitið er stutt ætla ég að lesa meginefni þess. Með frumvarpinu er innleiðingu tilskipunar 2009/31/EB um geymslu koldíoxíðs í jörðu í íslensk lög breytt á þann veg að kolefnisföngun og niðurdæling koldíoxíðs til varanlegrar geymslu verði heimiluð á íslensku yfirráðasvæði. Þannig verður hefðbundin niðurdæling koldíoxíðs til geymslu leyfð sem og niðurdæling koldíoxíðs til steinrenningar, þ.e. Carbfix-aðferðin sem þróuð hefur verið hér á landi og vakið athygli víða um heim.
Nefndin fagnar því að Carbfix-aðferðin hafi sannað sig sem góður kostur við bindingu koldíoxíðs hér á landi. Enn fremur er ánægjulegt að hún nýtist utan lands þar sem aðstæður eru réttar. Hún gagnast einnig erlendum fyrirtækjum til að binda hérlendis þessa gróðurhúsalofttegund og hagnýta sér þar með ETS-viðskiptakerfi Evrópusambandsins. Með notkun Carbfix-aðferðarinnar getur Ísland lagt fram frumlegan og árangursríkan skerf í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Bent var á að skilgreining frumvarpsins á niðurdælingu koldíoxíðs til varanlegrar geymslu í jarðlögum kynni að vera of þröng með því að tiltaka sérstaklega steinrenningu. Aðrar tæknilausnir við geymslu og bindingu koldíoxíðs gætu þróast og bæri því ekki að afmarka skilgreininguna með því að tiltaka sérstaklega steiningu sem aðferð til varanlegrar geymslu. Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð frumvarpsins þess efnis að áfram verður hægt að prófa aðrar aðferðir til niðurdælingar þar sem heimild til rannsókna og þróunarverkefna verður enn til staðar. Komi fram nýjar öruggar aðferðir til varanlegrar geymslu koldíoxíðs úr slíkri rannsóknar- og þróunarvinnu væri unnt að endurskoða lögin og heimila slíkar aðferðir.
Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu fellur Carbfix-aðferðin sem slík undir tilskipunina að mati sérfræðinga Evrópusambandsins. Minni áhersla sé á hvað gerist eftir niðurdælingu, þ.e. hvort það steinrenni eða geymist sem lofttegund neðan jarðar. Nefndin hvetur stjórnvöld til áframhaldandi viðræðna við framkvæmdastjórn ESB með það að markmiði að flýta endurskoðun regluverks Evrópusambandsins þannig að báðum aðferðum niðurdælingar til varanlegrar geymslu verði tryggður skýr sess í regluverkinu.
Mig langar að bæta því við, herra forseti, til skýringar, að þessi niðurdæling koldíoxíðs sem lofttegundar og geymsla þess sem lofttegundar hefur tíðkast en þessi, við skulum segja, íslenska aðferð, með smábandarísku ívafi, er ný af nálinni. Það mikilvæga er að samkvæmt Evrópusambandinu tekur það mark á báðum aðferðum þó að það vanti enn í orðalag að þess sé getið í reglugerðinni. Umhverfis- og samgöngunefnd er sem sagt að hvetja til þess að þeim viðræðum verði haldið áfram og það verk klárað.
Nefndin telur að með þessari lagasetningu sé ekkert að vanbúnaði þeim aðilum er hyggjast nýta Carbfix-aðferðina til kolefnisbindingar, hvorki innlendum né erlendum. Nefndin ítrekar jafnframt að leggja ber ríka áherslu á að minnka losun gróðurhúsalofttegunda jafnhliða aukinni kolefnisbindingu. Hvorugt verkefnið útilokar eða dregur úr mikilvægi hins.
Hér er ákveðin breytingartillaga sem ég ætla ekki að lesa vegna þess að það er bara leiðrétting á tilvísun í tölulið. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri litlu breytingartillögu og undir þetta skrifa 25. febrúar í ár, Bergþór Ólason formaður, Ari Trausti Guðmundsson sem hér stendur, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson, Jón Gunnarsson, Karl Gauti Hjaltason, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Jón Gunnarsson og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir þetta álit samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.
Hér hef ég farið yfir þetta nefndarálit og það sérkennilega kann að vera, þar sem við stöndum hér og erum að ræða um hvernig eigi nú að fyrirkoma koldíoxíði ofan í jörðinni, að eldgos gæti verið að hefjast á Reykjanesskaga sem mun dæla verulegu magni af koldíoxíði út í andrúmsloftið eins og eldgos hafa gert öldum og milljónum ára saman og við munum ekki ráða við að dæla því niður í jarðlög og binda. En, herra forseti, ég hef lokið máli mínu.