stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og ég vil þakka framsögumanni fyrir þetta ágæta mál. Ég held að það sem hann kom inn á í ræðu sinni, um að auka gagnsæi í sjávarútveginum, sé gríðarlega mikilvægt. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur öll. Sjávarútvegurinn er svolítið heit kartafla í umræðunni og þess vegna er mikilvægt að þegar við tökum hann til umræðu sé heil brú í því sem fram kemur.
Það mætti skoða það í meðferð þessa frumvarps að þegar við tölum um 12% þorskígildishlutfall af heildinni þá er það nú svolítið skrýtin tala fyrir marga. Það er ekki þannig að allir viti hvað þorskígildi þýðir eða hvað hver tegund er mikið í þorskígildum. Jafnvel sá sem hér stendur og þykist nú vita ýmislegt um sjávarútveg væri kannski ekki alveg tilbúinn til þess að þylja upp hvað ufsi væri mörg þorskígildi eða karfi eða langa eða loðna eða hvað það nú heitir allt saman, þessar tegundir sem við fjöllum um. Þess vegna gæti það verið hugmynd, og ég vil leggja það til við atvinnuveganefnd, að skoða það í meðferð málsins að heildarhámarkseign hvers fyrirtækis í kvótanum eða í hlutdeildinni væri sett fram í prósentum af hverri tegund, ekki í þorskígildum. Það myndi auka mjög gagnsæi að fyrir lægi nákvæmlega hvað hvert fyrirtæki ætti t.d. í prósentum af síld eða hvað hvert fyrirtæki ætti í prósentum af humri, þorski eða ýsu. Þá gætu allir í sjálfu sér séð það í hendi sér hvað það er. En þegar talað er um að um sé að ræða þetta mörg þorskígildi af ufsa eða karfa eða ýsu þá ruglar það fólk. Ég held að þetta myndi auka gagnsæi.
Ég held líka að það sem kom fram í ræðu framsögumanns hér áðan, þær fréttir sem hann segir af jafn ágætu fyrirtæki og Síldarvinnslunni, að það sé að fara á markað, sé eitt af því sem auki gagnsæi í greininni. Það mun verða til að auka sátt og trúnað sem þarf svo mikið að auka í sjávarútvegi og ég fagna því mjög að fleiri fyrirtæki fari í Kauphöllina. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að stærstu útgerðarfyrirtækin séu skráð þar. Þar er ákveðin upplýsingaskylda sem fyrirtækin þurfa að sinna, upplýsingaskylda sem fólk kallar eftir og er til þess fallin að auka sátt og trúnað og traust á sjávarútveginum. Hann er alger undirstöðuatvinnugrein í fjölda byggðarlaga. Hann er greinin sem stendur alltaf upp úr, greinin sem stóð upp úr í Covid og greinin sem stendur upp úr þegar kemur að nýsköpun. Í skjóli hennar hafa stærstu og öflugustu nýsköpunarfyrirtæki Íslendinga þróast og þannig mun það verða áfram. Það er gríðarleg arðsemi og fjárfesting í þessari grein. Hún þarf að halda áfram að eflast og dafna og það er auðvitað okkar hlutverk að skapa um sjávarútveginn, eins og alla aðra atvinnustarfsemi í landinu, góða umgjörð sem gerir atvinnulífið sterkt og gott til að borga fólkinu í landinu góð laun.