uppbygging geðsjúkrahúss.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það er mjög gott ef það dregst upp hver er munurinn á Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni því að hann er vissulega til staðar og ágætt að kjósendur geri sér grein fyrir því. En stefna Sjálfstæðisflokksins er að við séum með hið besta og öflugasta heilbrigðiskerfi sem allir hafa sama aðgang að og það sé kostað úr sjóðum almennings. Við gerum aftur á móti ekki endilega kröfu um að það sé ríkið sjálft sem sjái um reksturinn. Í okkar norrænu velferðarsamfélögum, sem við viljum svo gjarnan bera okkur saman við, er í miklu meira mæli en gert er hér á landi unnið með einkaaðilum og sjálfstæðum aðilum að því að veita þjónustuna, ávallt á kostnað ríkisins. Það var það sem ég var að tala fyrir hér.
Landspítalinn gegnir veigamiklu hlutverki, ég lít upp til Landspítalans og mér finnst hann mjög mikilvæg eining. En ég velti því jafnframt fyrir mér hvort stundum geti farið betur á því að ákveðin veikindi séu tekin þar undan og látin í hendur annarra aðila, það gæti verið ríkisstofnun en gæti líka verið eitthvað annað, sem heldur utan um þau algerlega.
Hv. þingmaður kom inn á heilsugæsluna. Jú, við höfum verið að efla sálfræðiþjónustuna en þörfin er enn meiri og ég tek undir það. Þá velti ég því líka fyrir mér: Er mikilvægt að við séum með eitthvert allsherjargeðsvið sem veitir þjónustuna, bæði „fýsískt“ á staðnum en líka inn til heilsugæslunnar? Þá kem ég kannski inn á það sem ég ræddi áðan varðandi fjarlækningar: Getum við eflt þessa þjónustu okkar enn frekar með öflugu batteríi sem heldur utan um okkar geðrænu vandamál og veitir farþjónustu inn til mismunandi stofnana sem eru að veita slíka þjónustu, inn í heilsugæsluna þegar það á við og (Forseti hringir.) jafnframt til sjálfstætt starfandi sálfræðinga eða geðlækna þegar það á við þannig að rekstrarformið kunni að einhverju leyti að vera misjafnt þó að gjaldið sé alltaf greitt úr sjóðum hins opinbera?