uppbygging geðsjúkrahúss.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessu þingmáli af heilum hug. Geðheilbrigðismálin eru stærsta áskorun nútímans og verða líka ein stærsta áskorun framtíðarinnar. Geðheilbrigði er uppistaðan í heilbrigði þjóðar og rannsóknir sýna í auknum mæli að oft eru náin tengsl á milli andlegra og líkamlegra veikinda, enda er heilinn ekkert annað en líffæri og allt vinnur þetta saman. Samfélagslegir sem og kerfislægir fordómar hafa verið viðloðandi geðsjúkdóma í áratugi og það er ljót saga í kringum það. Það sárvantar einmitt að meiri fókus sé settur á uppbyggingu í þágu geðheilbrigðis innan ríkisstofnana. Til að mynda sárvantar afvötnunardeild á Íslandi. Oft er það örlítill gluggi sem fólk sér út um þegar það er illa statt í neyslu þar sem það er tilbúið til að koma í meðferð, tilbúið til að fara í afvötnun og tilbúið til þess að velja nýja leið í lífinu. Það er ekki til afvötnunardeild á Íslandi núna þar sem fólk getur bara gengið beint inn af götunni og sagt: Ég er tilbúinn. Núna ætla ég að taka ábyrgð og breyta lífi mínu til hins betra. Þetta vantar.
Við missum til að mynda margfalt fleiri í sjálfsvígum á Íslandi en í öllum öðrum slysum á landinu. Samt gerum við allt of lítið. Við tökum geðheilbrigði og geðvandamál ekki nógu alvarlega. Við þurfum að taka geðheilbrigðismál í landinu algerlega nýjum tökum. Þessi vinna þarf raunar að byrja á skólaaldri. Hún þarf að byrja á fyrsta og öðru stigi. Það þarf að vera snemmtæk íhlutun og þarf að minnast á geðrækt í námskrá.
Þetta frumvarp er því mjög jákvætt og leggur náttúrlega til að ráðist verði í markvissan undirbúning í uppbyggingu húsnæðis fyrir geðheilbrigðisþjónustu. Það vantar húsakost, það vantar mannlegt umhverfi fyrir fólk sem er andlega veikt og oft er það svo að fólk sem er mjög andlega veikt á geði er enn þá viðkvæmara fyrir umhverfi sínu en aðrir. Oft getur umhverfið gert veikindin verri en þau voru fyrir.
Geðheilbrigðisfræðin eru að þróast hratt á heimsvísu og auðvitað á að gera þessu sviði lækninga hærra undir höfði en gert er í dag. Allt tal um að skilja það frá annarri starfsemi gerir lítið annað en að styrkja fyrir fram staðalímyndir um að þetta séu veikindi sem séu svo ólík öðrum veikindum, að þessir sjúklingar séu svo ólíkir öðrum sjúklingum og þurfi svo ólíka nálgun og ólíka meðferð. Fyrir nú utan það, virðulegi forseti, að það er ekki útilokað að gera hvort tveggja.
Ég vil óska flutningsmanni og þeim sem eru á málinu innilega til hamingju með málið. Ég hlakka til að sjá það í velferðarnefnd verði ég enn þar þegar það kemur þangað inn og óska því velfarnaðar hér innan þings.