vistun barna á vegum stjórnvalda á einkaheimilum.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um vistun barna á vegum stjórnvalda á einkaheimilum. Meðflutningsmenn með mér á þessari tillögu eru hv. þingmenn Ólafur Ísleifsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Oddný G. Harðardóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson. Með þessari tillögu er lagt til að Alþingi álykti að fela forsætisráðherra, í samráði við dómsmálaráðherra, að skoða hvort ástæða þyki til að kanna vistun barna af hálfu stjórnvalda á einkaheimilum og hvort og þá hvernig slík könnun verði afmörkuð. Ef þessi tillaga verður samþykkt er gert ráð fyrir að ráðherra kynni Alþingi niðurstöður könnunarinnar eigi síðar en í lok maí 2021, þ.e. í vor.
Frú forseti. Það tíðkaðist hér áður fyrr á árunum að svokölluð ólátabörn eða ólátaunglingar voru oft send í sveit. Slík dvöl var talin styrkja þau og efla og gera þau að mönnum, eins og oft var sagt á þeim tíma. Þess vegna þótti það oft ekkert tiltökumál þótt hið opinbera sendi eða ráðlegði að senda börn sem voru kannski erfiðari en mörg önnur börn á stofnun eða á heimili á vegum ríkisins. Enginn gerði sér sérstaka rellu yfir því á þeim tíma við hvaða aðstæður börnin bjuggu nákvæmlega, hvað gerðist á þessum heimilum og hvað fór þar fram á meðan á dvöl þessara barna og unglinga stóð.
Frú forseti. Við vorum vakin upp við vondan draum hinn 2. febrúar 2007 þegar fjallað var um vistheimilið í Breiðavík í Kastljósþætti í Ríkisútvarpinu. Vistheimilið var rekið af ríkinu sem barnaverndarúrræði frá 1952 til ársins 1979. Í þættinum komu fram ásakanir um að margir vistmenn hefðu mátt þola alvarlegt ofbeldi, illa meðferð og vanrækslu á meðan þeir dvöldu á heimilinu. Í kjölfarið komu fram ítarlegri upplýsingar um málið. Fyrrverandi vistmenn komu fram og greindu frá ofbeldi og illri meðferð. Hinn 13. febrúar 2007 lagði ríkisstjórnin fram frumvarp þess efnis að fram færi heildstæð könnun á starfsemi heimilisins og annarra hliðstæðra stofnana þar sem börn dvöldu, þ.e. hálfum mánuði eftir umræddan Kastljósþátt var komið fram frumvarp til laga. Lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, nr. 26/2007, tóku gildi 28. mars 2007. Svokallaðri vistheimilanefnd var komið á fót og með því skyldu skapaðar forsendur til samfélagslegs uppgjörs vegna aðbúnaðar barna á þessum heimilum. Þetta ferli tók sem sagt tæpa tvo mánuði frá þættinum til lagasetningarinnar.
Í kjölfarið komu lög frá 2010 um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum og heimilum sem féllu undir framangreind lög. Skilyrði til þess að krefjast sanngirnisbóta var að fyrir lægi skýrsla vistheimilanefndar um viðkomandi stofnun og að auki innköllun sýslumanns. Hinni svokölluðu vistheimilanefnd var falið að kanna heildstætt starfsemi Breiðavíkurheimilisins með erindisbréfi forsætisráðherra í apríl 2007. Fyrsta skýrsla nefndarinnar kom út í febrúar 2008 og fjallaði hún um starfsemi Breiðavíkurheimilisins á árinu 1952–1979. Nefndin skilaði jafnframt tillögum til forsætisráðherra um viðbrögð við niðurstöðu skýrslunnar, hugsanlega bótaskyldu ríkisins og hvaða skref skyldi stíga næst.
Í kjölfarið fékk nefndin nýtt erindisbréf í apríl 2008 þar sem henni var falið að leggja mat á hvort fleiri stofnanir skyldu sæta könnun hennar og ef svo væri, hverjar það væru. Nefndin ákvað í kjölfarið að taka til athugunar starfsemi eftirfarandi heimila, stofnana og sérskóla:
Heyrnleysingjaskólinn í Reykjavík og miðað var við árabilið 1947–1992.
Vistheimilið Kumbaravogur við Stokkseyri sem starfaði á árunum 1965–1984.
Skólaheimilið Bjarg á Seltjarnarnesi sem starfaði á árunum 1965–1967.
Vistheimilið Reykjahlíð í Mosfellssveit sem starfaði á árunum 1956–1972.
Vistheimilið Silungapollur sem var starfrækt af Reykjavíkurborg á árunum 1950–1969.
Heimavistarskólinn að Jaðri sem starfaði á árunum 1946–1973.
Upptökuheimili ríkisins í Elliðahvammi og í Kópavogi sem starfaði á árunum 1945–1971.
Unglingaheimili ríkisins, sem tók við af Upptökuheimilinu, og starfaði á árunum 1971–1994.
Frú forseti. Haustið 2009 skipaði forsætisráðherra nefnd til að semja drög að frumvarpi til laga þar sem mælt yrði fyrir um greiðslu bóta til þeirra sem hefðu orðið fyrir illri meðferð eða ofbeldi á stofnunum og heimilum er heyra undir gildissvið laganna frá 2007. Frumvarp þess efnis var lagt fram á 138. löggjafarþingi og samþykkt sem lög nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir þessi lög. Embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra var falið að annast innköllun krafna, gera sáttaboð o.fl. með heimild í lögunum.
Tengiliður vistheimila hjá dómsmálaráðuneytinu hefur séð um framkvæmd við mat og greiðslu sanngirnisbóta til þeirra sem urðu fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi á vist- eða meðferðarheimilum fyrir börn. Starf tengiliðarins hefur m.a. falist í að koma á framfæri upplýsingum til þeirra sem kunna að eiga rétt á sanngirnisbótum og veita leiðbeiningar um framsetningu bótakrafna í kjölfar innköllunar sýslumanns. Þá hefur hann aðstoðað fyrrverandi vistmenn, sem eiga um sárt að binda í kjölfar vistunar, við að sækja sér þjónustu sem ríki og sveitarfélög bjóða upp á, svo sem endurhæfingu og menntun.
Vistheimilanefnd lauk störfum í lok árs 2011 vegna verkefna á grundvelli skipunarbréfa frá 2007 og 2008. Þegar verkefnið fór af stað komu einnig fram tilkynningar um áþekka háttsemi á öðrum stofnunum og heimilum. Vistheimilanefnd skráði niður allar tilkynningar þess efnis, en þeim var öllum vísað frá enda ekki heimild til greiðslu bóta nema könnun vistheimilanefndar hefði farið fram.
Vistheimilanefnd var endurskipuð árið 2012 og falið að skoða vistun barna á Kópavogshæli 1952–1993 og skilaði skýrslu um könnunina í byrjun árs 2017.
Með lögum nr. 117/2015 var ákvæði til bráðabirgða bætt við lög nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lögin, sem heimilar ráðherra að fenginni umsögn vistheimilanefndar að ákveða að aðrar skýrslur en skýrslur vistheimilanefndar verði lagðar til grundvallar því að krafa um sanngirnisbætur verði tekin til meðferðar. Á grundvelli ákvæðisins voru sanngirnisbætur greiddar út vegna illrar meðferðar og ofbeldis sem börn höfðu orðið fyrir í Landakotsskóla á árum áður.
Í skýrslu um framkvæmd á greiðslu sanngirnisbóta á grundvelli laganna frá 2010 frá desember 2018 kemur fram að alls bárust 1.190 umsóknir um sanngirnisbætur vegna áðurgreindra stofnana og 41 vegna heimila og stofnana sem ekki falla undir lög frá 2007, eða samtals 1.231 umsókn. Öllum umsóknum vegna annarra heimila og stofnana en þeirra sem féllu undir gildissvið laganna var hafnað. Að mati flutningsmanna tillögunnar sem ég mæli hér fyrir má því ætla að hluti af þeim erindum sem bárust inn á borð til nefndarinnar varði vistheimili eða einkaheimili þar sem börn voru vistuð að tilstuðlan opinberra aðila, svo sem barnaverndaryfirvalda, og sem þörf er á að kanna nánar og rannsaka.
Nú á yfirstandandi þingi lagði forsætisráðherra fram frumvarp til laga um breytingu á lögum frá 2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum, svokallað lokauppgjör. Með frumvarpinu var m.a. lagt til að nefnd til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn yrði aflögð. Í því samhengi voru lagðar til breytingar á lögunum þannig að unnt yrði að greiða sanngirnisbætur í nánar afmörkuðum tilvikum án þess að skýrsla nefndar samkvæmt lögunum eða önnur skýrsla lægi fyrir og einfalda þannig bótauppgjör. Frumvarpið var samþykkt sem lög nr. 148/2020. Í nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar kemur fram að við meðferð málsins hafi verið vakin athygli á þeim fjölda barna sem ráðstafað var af stjórnvöldum á einkaheimili og að mikilvægt væri að þeir einstaklingar fengju jafnframt að gera upp vistun sína á slíkum heimilum með þeim hætti að hið opinbera skapaði vettvang þar sem þeir gætu greint frá uppvexti sínum og aðstæðum á umræddum heimilum. Í því samhengi benti nefndin m.a. á mikilvægi þess að frekari umræða ætti sér stað um vistun barna á einkaheimilum og hvort og þá hvernig væri hægt að afmarka þessi tilvik.
Við meðferð málsins hér fyrir jól barst umsögn frá Barnaverndarstofu og ætla ég, með leyfi forseta, að lesa smákafla úr þeirri umsögn:
„Að mati stofunnar er nauðsynlegt að sá hópur einstaklinga sem vistaður var af hálfu stjórnvalda, þ.e. barnaverndaryfirvalda, á einkaheimilum á barnsaldri, fái sömu tækifæri og aðrir einstaklingar sem vistaðir voru á barnsaldri á stofnunum á vegum hins opinbera til að tjá sig um dvöl sína á þeim heimilum sem þeim var ráðstafað á […] Liggur því ljóst fyrir að fjölda barna var ráðstafað af stjórnvöldum á einkaheimili, og segir sagan að það eigi jafnframt við um börn sem vistuð voru vegna fötlunar sinnar. Með vísan til þessa telur stofan mikilvægt að sá hópur barna sem vistaður var af opinberum aðila á einkaheimilum, bæði vegna fötlunar og annarra ástæðna, fái jafnframt að gera upp vistun sína á slíkum heimilum með þeim hætti að hið opinbera búi til vettvang þar sem þau geta greint frá uppvexti sínum og aðstæðum á umræddum heimilum, líkt og einstaklingum sem vistaðir voru á barnsaldri hefur verið gert kleift.“
Frú forseti. Með tillögu þessari er lagt til að forsætisráðherra, í samráði við dómsmálaráðherra, skoði hvort ástæða þyki til að kanna starfsemi einkaheimila þar sem börn voru vistuð af hálfu stjórnvalda. Ráðherra er falið að afmarka með nánari hætti þá starfsemi sem könnunin á að taka til og það tímabil sem miða á við, að teknu tilliti til persónuverndarsjónarmiða. Til hliðsjónar væri hægt að nýta þá þekkingu vistheimilanefndar sem hefur orðið til við vinnu hennar sem og líta til hvernig önnur lönd hafa brugðist við vegna sambærilegra mála, þar á meðal til Noregs.
Að mati flutningsmanna er mikilvægt að þeir einstaklingar sem sætt hafa illri meðferð á slíkum heimilum fái að gera upp vistunina. Síðan þessi mál komu upp hefur átt sér stað sársaukafullt uppgjör fjölmargra einstaklinga og ekki síður fyrir samfélagið. Flutningsmenn leggja áherslu á nauðsyn þess að mál einstaklinga sem vistaðir voru af hálfu stjórnvalda á einkaheimilum verði skoðuð með sambærilegum hætti og starfsemi framangreindra heimila, og eftir atvikum að þeir einstaklingar eigi kost að fá þær misgjörðir bættar.
Frú forseti. Með lögunum frá því í desember síðastliðnum, lögum nr. 148/2020, sem voru sett til að ljúka bótauppgjöri vegna fatlaðs fólks sem vistað var á barnsaldri á öðrum opinberum stofnunum sem ríkið bar ábyrgð á, var litið svo á að uppgjöri við fortíðina að þessu leyti væri lokið og unnt væri að taka afstöðu til erinda frá fólki sem vistað var á barnsaldri eða unglingsaldri á stofnunum fyrir fatlað fólk og telur sig hafa orðið fyrir illri meðferð þar. Með þeim lögum var talið að unnt væri að ljúka þessu svokallaða samfélagslega uppgjöri vegna stofnana þar sem þessi börn voru vistuð og það má vel vera. En að kalla þetta lokauppgjör, frú forseti, er að mínu mati töluvert fjarri lagi. Í þessu sambandi bendi ég á að í lögum nr. 47/2010, um greiðslu sanngirnisbóta, er markaður ákveðinn líftími, þrjú ár, samkvæmt lögunum frá því í desember síðastliðnum. Ég tel einsýnt að við þurfum að gera upp fortíðina að öllu leyti. Því er ekki lokið. Út af standa a.m.k. þau börn sem voru vistuð af hálfu stjórnvalda, á vegum opinberra aðila, barnaverndarnefnda og annarra aðila, á heimilum, sveitaheimilum og öðrum heimilum, á þessum tíma fyrir árum og áratugum síðan og hafa ekki fengið áheyrn hins opinbera. Þetta stendur eftir. Þessu er ekki lokið fyrr en við sem þjóð, sem samfélag, höfum tekið öll þessi mál út úr sinni myrku fortíð og klárað það uppgjör. Þessu er ekki lokið fyrr en við höfum veitt þessu fólki áheyrn þar sem það getur gert upp veru sína á heimilum sem það var sent á sem börn á vegum opinberra aðila. Hugsanlega eru þar dæmi um slæma meðferð sem þarf að gera upp.
Ég óska þess að málið fái vandaða meðferð í nefnd og komi svo aftur í þingsal.