störf þingsins.
Herra forseti. Það var skuggalegt að vita af ferjunni Baldri í nótt, damlandi úti á miðjum Breiðafirði, vélarvana í þræsingsveðri, og það er ekki enn búið að ná fullri stjórn á aðstæðum. Þetta er gamalt skip sem stenst alls ekki kröfur okkar tíma og aðeins ein vél, engin til vara. Eftir að Baldur bilaði í gær lokuðust allar leiðir til og frá sunnanverðum Vestfjörðum. Klettsháls var lokaður og ekki hefur verið flogið í tvo daga á Bíldudal. Þetta gerist á sama tíma og ferjan Baldur er biluð úti á firði með fólk og varning um borð.
Það sem er kannski einna verst í þessu er að Baldur bilaði líka síðasta sumar og samkvæmt okkar upplýsingum af sömu ástæðum. Heimamenn hafa kallað eftir því að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að það komi ný ferja í staðinn fyrir Baldur. Það er alveg borðleggjandi að það er nauðsyn. Það er ekki hægt að bjóða fólki, sem treystir á þessa mikilvægu samgönguæð, upp á ferju sem ekki tryggir öryggi farþega og áhafnar.
Fyrr í þessari viku fékk sá sem hér stendur einmitt svör frá hæstv. samgönguráðherra um málefni Baldurs. Mér fannst rík ástæða til að spyrja ráðherra hvað yfirvöld ætluðu sér í þessum málum. Í svari ráðherra við þessari þúsundustu fyrirspurn á þinginu kom fram að verið sé að skoða að framlengja samninginn við þá aðila sem reka Baldur, sem hafa að öðru leyti staðið sig ágætlega. Í svari ráðherra við spurningu minni um hugsanlega endurnýjun á núverandi skipi kemur fram að svo lengi sem ferjan uppfylli skilyrði sem sett eru í útboði, t.d. um haffærni, sé það rekstraraðilans að velja það skip sem er heppilegast fyrir verkefnið. En markmið stjórnvalda í þessu efni eru ekki háleit eða skýr. Það er ljóst að tryggja þarf sem allra fyrst að haldið verði áfram að sigla yfir Breiðafjörð og það á nýju skipi.