störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í miðjum Covid-faraldri er hæstv. heilbrigðisráðherra í stríði við sjúkraþjálfara, talmeinafræðinga og hjúkrunarheimili. Biðlistar í sjúkraþjálfun lengjast og afleiðingarnar verða þær að innlagnir á sjúkrastofnanir munu aukast með tilheyrandi kostnaði. Börn og eldri borgarar eru á löngum biðlista eftir aðstoð talmeinafræðinga og afleiðingarnar eru skert tjáskipti og framtíð barnanna jafnvel sett í algjöra óvissu í boði ríkisstjórnarinnar. Á bak við þetta allt eru fjölskyldur og einstaklingar sem þjást að ástæðulausu. Lífsgæði þeirra eru skert stórlega og þar með möguleikar þeirra til eins eðlilegs lífs og hægt er.
Þarna getur ríkisstjórnin verið í stríði. En hvers vegna er hún ekki í stríði þegar verið er selja sjúkraupplýsingar í dómsmálum? Einnig eru upplýsingar um fjárhagsstöðu einstaklinga seldar sem hver önnur gróðavara. Ríkisstjórnin er ekki í stríði við að útrýma spilakössum. Spilakassar eru 900 á landinu öllu og þar af 81 á einum stað í Reykjavík. Er það ekki spilavíti? 52 á einum stað í Kópavogi og við hliðina 32 aðrir. 84 í Hamraborg í Kópavogi. Er það félagslegt úrræði eða er verið að reka spilavíti? Það merkilegasta við þetta allt saman er að í Hafnarfirði eru um 100 kassar, fáir á Seltjarnarnesi, fáir í Mosfellsbæ en, undur og stórmerki, ekki einn í Garðabæ árið 2019, ekki einn. Hvers vegna? Hvers vegna er enginn spilakassi í Garðabæ? Er það ekki það sem við eigum að spyrja okkur að? Eigum við ekki að sjá til þess að við tökum upp það sem Garðabær er að gera, að útrýma spilakössum? Við eigum að fara í smiðju Garðbæinga og sjá til þess að það séu hvergi spilakassar. Það er ekkert annað en spilavíti þegar það eru komnir um 100 kassar á sama stað. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)