151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

störf þingsins.

[10:39]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ferjan Baldur flýtur vélarvana á Breiðafirði með tæplega 30 manns innan borðs. Aðstæður á vettvangi hafa verið krefjandi vegna veðurs en nú eru varðskip og dráttarbátur komin að ferjunni og munu koma henni að landi og þá komast farþegar heilir í höfn eftir sólarhringsferð. Þetta er þriggja klukkustunda ferð eða tæplega það.

Ferjan Baldur hefur verið kölluð brúin yfir til Vestfjarða. Hún hefur sinnt mikilvægu hlutverki í samgöngum við fjórðunginn og hefur þá sérstaklega verið mikilvæg tenging við sunnanverða Vestfirði á vetrum þar sem samgöngur á landi hafa verið erfiðar. Í gær voru allar leiðir til og frá Vestfjörðum lokaðar þar sem heiðar voru ófærar og flug lá niðri. Þetta stef er kunnuglegt á vetrum og þetta óöryggi í samgöngum er algerlega óásættanlegt.

Þótt miklar framkvæmdir séu við uppbyggingu vega á Vestfjörðum verður ferjan yfir Breiðafjörð nauðsynleg því að það tekur tíma að koma á vegabótum. Áfram verður Klettsháls farartálmi á vetrum og ferja því nauðsynleg, bæði til fólks- og vöruflutninga. Fiskeldi á Vestfjörðum kallar í auknum mæli á flutninga með ferjunni vegna útflutnings. Þarna er á ferðinni viðkvæm ferskvara og þá skiptir máli að hafa öruggar samgöngur við fjórðunginn. Ferjan er líka mikilvæg ferðaþjónustu, bæði við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Núverandi ferja er löngu orðin úrelt skip til að sinna þessari þjónustu. Aðeins er ein aðalvél í ferjunni, skipið hentar illa nútímafarþegaflutningum, aðgengi er mjög ábótavant og skipið því komið á tíma þótt ekki væri nema vegna öryggissjónarmiða. Ríkið tekur þátt í rekstri ferjusiglinga og tekur núverandi samningur til maí 2022 eða í eitt ár í viðbót. Við getum þakkað forsjóninni að ekki fór verr að þessu sinni og vonandi komust allir heilir í höfn þegar ferjan bilaði. En það verður að bregðast fljótt við og finna skip sem leysir Baldur af, bæði á meðan viðgerð stendur og til framtíðar.