störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar til að spyrja þá sem á þetta hlýða: Værir þú til í að kynna spilakassa fyrir þínum nánustu sem leið til að styrkja gott málefni? Hvenær fórst þú síðast í spilakassasal til að styrkja gott málefni? Hafir þú ekki gert það nýlega hvernig réttlætir þú að mikilvæg samfélagsleg starfsemi sé fjármögnuð með þessum hætti?
Vissir þú, virðulegi forseti, að 70% af veltunni af rekstri spilakassa á Íslandi kemur frá fólki sem haldið er alvarlegri spilafíkn, alvarlegri spilafíkn og spilafíkn er sjúkdómur. Staðreyndin er sú að mjög fámennur og viðkvæmur hópur í samfélaginu heldur upp starfsemi spilakassa á Íslandi. Þessi hópur á hvergi heima. Það eru fá meðferðarúrræði og það skortir skýra sýn hjá stjórnvöldum. Er t.d. réttlætanlegt að fjármagna uppbyggingu Háskóla Íslands með peningum frá veikum spilafíklum?
Í liðinni viku var haldinn tvískiptur fundur í velferðarnefnd sem ég óskaði eftir. Seinni hluti fundarins var opinn fundur með heilbrigðisráðherra, dómsmálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra. Þetta var gagnlegur fundur og upplýsandi um stöðu mála. Og staðan er vond. Mikilvægt er að góðar stofnanir í okkar samfélagi þurfi ekki að reiða sig á fjármagn sem fengið er á þennan hátt. Þetta viðskiptamódel er tímaskekkja og þessi siðlausa staða er á ábyrgð okkar allra. Við erum öll ábyrg fyrir þessari stöðu. Ég sæi það í anda að níðst væri á sjúklingum með annars konar veikindi á þennan hátt. Það hvort við eigum að hætta að níðast á veiku fólki á heldur ekki að vera háð því hvernig okkur tekst að finna aðrar fjármögnunarleiðir fyrir þessa aðila. Þessi atriði eru óháð hvort öðru. Ég vil hrósa SÁÁ fyrir að hafa dregið sig út úr þessari starfsemi og ég vona að fleiri fylgi á eftir. Eftirlit með starfseminni er í molum og jafnvel þótt það standi í lögum (Forseti hringir.) að hún eigi að vera skýr og sterk þá er hún það ekki. Lagaumhverfið í kringum þetta er brostið. Og ég spyr, virðulegi forseti: Gæti íslenska ríkið mögulega (Forseti hringir.) verið skaðabótaskylt?