151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

störf þingsins.

[10:50]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hugur okkar er hjá íbúum Suðurnesja þessa dagana í von um að yfirstandandi jarðhræringar hafi ekki alvarlega afleiðingar þar. Á sama tíma þurfa viðbragðsáætlanir og varaleiðir að vera til staðar. Þannig hafa jarðhræringarnar á Reykjanesi enn og aftur beint sjónum okkar að nauðsyn þess að eiga örugga varaflugvelli annars staðar en á suðvesturhorninu. Fyrir liggur þörf fyrir framkvæmdir á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum til að þeir geti þjónað sem varaflugvellir þegar á reynir. Á síðasta ári var tekin ákvörðun um stækkun flugstöðvar og flughlaðs á Akureyrarflugvelli. Ákveðið var að fjármagna verkefnin í gegnum sérstakt fjárfestingarátak stjórnvalda í kjölfar efnahagsáfalls vegna Covid. Á fundi á vegum Markaðsstofu Norðurlands fyrir tæpum mánuði kom fram hjá fulltrúa Isavia að framkvæmdir væru komnar vel af stað, verklegar framkvæmdir hafnar og hönnunarvinna í gangi og gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í maí/júní 2023. Þá verður lokaverkefni malbikun nýs flughlaðs. Þörf er fyrir malbikun flugbrautar á Egilsstöðum og uppbyggingu flughlaðs eða viðbótarflugbrautar við hlið vallarins sem hefði fjölþættara notagildi. Við afgreiðslu samgönguáætlunar fyrir tæpu ári síðan var gert ráð fyrir að fjármagn til flughlaðs kæmi úr fjárfestingarátaki en Isavia fjármagnaði malbikun flugbrautar. Vissulega hafa efnahagsleg áhrif Covid áhrif á áætlanir Isavia en hvergi má hika við að koma þessum verkefnum í framkvæmd. Þessum áætlunum um framkvæmdir við flugvellina verður að fylgja.

Ábyrgð Isavia, sem rekur flugvallarkerfið, á framgangi verkefna er mikil. Á hverjum tíma verður að gera þá kröfu að fyrir liggi greining á þörf fyrir framkvæmdir á flugvöllum, mat á kostnaði við framkvæmdir og forgangsröðun. Nauðsynlegt er að Isavia noti tímann vel núna til að hlúa að varaflugvallakerfinu og búa í haginn áður en flugumferð eykst á ný. Flest bendir til að ferðavilji að loknu Covid verði mikill.