störf þingsins.
Hæstv. forseti. Með opinberri klasastefnu eflum við atvinnulífið, sköpum ný störf og hagvöxt, ekki síst með tilliti til þeirra umbreytinga sem eru að verða með stafrænum og grænum lausnum og hringrásarhugsun. Stefnumótun og þróun klasa sem nýsköpunartækis er þroskaferli. Við ræddum skýrsluna og stefnuna sem hún geymir í gær, virðulegi forseti, en framkvæmdaáætlunin og útfærslan er eftir.
Ég vil leggja áherslu á hvað þarf að gera til að halda áfram veginn í þessum efnum. Í fyrsta lagi þarf að kortleggja klasaumhverfið betur og greina möguleikana. Í öðru lagi þarf að kortleggja stuðningsumhverfið sem er til staðar, sjóðakerfi og fjármagn, ívilnanir, rannsókna- og þekkingarfarveginn til að átta sig á hverju þarf að bæta við. Í þriðja lagi þarf að útfæra stefnuna. Staðreyndin er sú að stuðningur við klasaframtak og klasauppbyggingu er og hefur ekki verið nægilega markviss miðað við t.d. Norðurlöndin og Evrópusambandsríkin. Klasar eiga að spretta af þörfum atvinnulífsins og á forsendum samfélagsins. Það er ekki síst á forstigi klasa sem þeir þurfa faglegan og fjárhagslegan stuðning, leiðbeiningu og þjálfun, þjónustu og þekkingaruppbyggingu, vottunarferli, stuðning við erlenda tengslamyndun, ekki síst þeir klasar sem vísað er til að hafi möguleika á að verða svokallaðir ofurklasar sem tengja saman fyrirtæki og atvinnugreinar framtíðar og laða að frumkvöðla og fjármagn og tengja við rannsóknarvettvang og háskólasamfélag. Vísindaþorpið í Vatnsmýri er vísir að slíkum möguleikum á sviði líftækni og heilbrigðismála.
Við verðum að viðurkenna aðkomu hins opinbera, virðulegi forseti, og ráðast í að formgera stuðning stjórnvalda. Mér fannst umræðan í gær draga það fram og ég treysti því að hæstv. ráðherra og ríkisstjórn fylgi þessari stefnu vel eftir.