störf þingsins.
Herra forseti. Eftir að stjórnvöldum hafði í tæpt ár verið bent á ólöglega og skaðlega undirverðlagningu Íslandspósts á pakkasendingum dró til tíðinda. Undirverðlagningin hefur, eins og ítrekað hefur komið fram í fjölmiðlum, skaðað rekstrargrundvöll samkeppnisaðila, lítilla dreifingarfyrirtækja víðs vegar um landið, og að auki leitt til tapreksturs Íslandspósts sem skattgreiðendum er gert að borga með sérstöku aukafjárframlagi til fyrirtækisins. Stjórnarmeirihlutinn hér á þingi hefur verið með eindæmum skeytingarlaus um þessa stöðu og það hefur því miður skilað sér inn í stjórn Íslandspósts sem er skipuð fulltrúum stjórnmálaflokka. Það dró sem sagt til tíðinda á stjórnarfundum undir lok síðasta árs. Morgunblaðið greinir frá því í dag að í fundargerð frá 7. desember komi fram að stjórn Íslandspósts hafi gagnrýnt fyrrverandi forstjóra fyrir að fara gegn samþykktum með lækkun gjaldskrár og ekki upplýst stjórnina í samræmi við samþykktir félagsins. Þessi viðbrögð stjórnar Íslandspóst koma eftir linnulitla gagnrýni eins stjórnarmeðlims, Thomasar Möllers, fulltrúa Viðreisnar í stjórninni. Morgunblaðið greinir líka frá því í dag að samkvæmt fundargerð frá 30. nóvember sl. hafi Thomas Möller farið fram á að fá greiningu á öllum breytingum á gjaldskrá og ítrekað að þær skyldu lagðar fyrir stjórn.
Herra forseti. Það síðasta sem er að frétta af framgöngu stjórnarmeirihlutans í málefnum Íslandspósts er að Thomasi Möller var vikið úr stjórn Íslandspósts á aðalfundi félagsins síðastliðinn föstudag. Á þessari atburðarás allri má sjá birtingarmynd þess versta sem íhaldsflokkarnir í ríkisstjórninni hafa fram að færa; óþol fyrir málefnalegri gagnrýni, virðingarleysi fyrir fjármunum ríkisins og skeytingarleysi fyrir mikilvægi samkeppninnar. Þetta eiga hinir meintu ólíku flokkar í stjórnarmeirihlutanum sameiginlegt og útkoman verður einhvers konar (Forseti hringir.) vinstri Sjálfstæðisflokkur. Það er því miður ekki hrós.