störf þingsins.
Herra forseti. Þann 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, stigu níu íslenskar konur fram og tilkynntu að þær ætluðu að kæra íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir brot á rétti þeirra til réttlátrar málsmeðferðar í málum er varða kynbundið ofbeldi sem þær urðu fyrir. Það er alveg ljóst að málsmeðferðartíma í réttarvörslukerfinu er allra brýnast að leysa þegar kemur að kynferðisafbrotum. Það var því sláandi að sjá hæstv. dómsmálaráðherra draga upp Jón Steinar Gunnlaugsson, umdeildan flokkshest með umdeildar skoðanir og feril þegar kemur að málsmeðferð kynferðisafbrota, til að vinna að umbótum í réttarkerfinu. Hann og ráðherrann virðast þó vera ósammála um hvort hann eigi að koma með úrbótatillögur í málsmeðferð kynferðisafbrota, sem sýnir vandræðaganginn, sem erfitt er að skilja öðruvísi en svo að framgangur Jóns Steinars sé brýnni en að efla trúverðugleika réttarkerfisins.
Herra forseti. Það er ótrúlega mikilvægt að ráðast strax í umbætur á málsmeðferðartíma kynferðisafbrota og þetta er því miður alls ekki leiðin. Það ber ekki vott um framsýni eða metnað í málaflokknum að ráða átakahrút á eftirlaunum sem gerir sjálfan sig að miðpunkti allra mála. Málið snýst nefnilega alls ekki um Jón Steinar Gunnlaugsson, heldur að það þarf að ráðast í raunverulegar umbætur í meðferð mála sem eru þau allra þyngstu, viðkvæmustu og erfiðustu fyrir konur, börn og aðra þolendur kynferðisafbrota.
Ég skora á hæstv. ráðherra að sýna að henni sé raunverulega alvara með að vilja gera þær nauðsynlegu umbætur. Og í þeirri vinnu mun ég ekki liggja á liði mínu til að aðstoða og vinna að þeim umbótum með ráðherra.