151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

störf þingsins.

[11:03]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Það var gott að ekki fór verr þegar Breiðafjarðarferjan Baldur varð vélarvana í vonskuveðri í gær á Breiðafirði með farþega og flutningabíla og annan verðmætan farm. Ekki var hægt að koma ferjunni til hafnar í gær og í nótt sváfu 28 manns um borð og þar á meðal börn, rétt sunnan við Bjarneyjar á Breiðafirði í leiðinda slagvirði. Það er ekki skrýtið að við þingmenn séum að vekja athygli á þessu í dag. Slíkt getur því miður gerst og ítrekað hefur verið bent á það óöryggi sem felst í því að hafa einungis eina aðalvél. Ábyrgð og eftirlitsskylda yfirvalda er mikil þegar um er að ræða jafn veigamikinn hluta af samgöngum sunnanverðra Vestfjarða og ferjusiglingar eru. Allar leiðir frá sunnanverðum Vestfjörðum voru því lokaðir í lofti, láði og legi.

Við slíkt óöryggi í samgöngum verður ekki unað og verður að bæta úr strax, m.a. með því að efla vetrarþjónustuna á Vestfjarðavegi 60 nú þegar. Hlutverk og mikilvægi ferjunnar Baldurs hefur aukist jafnt og þétt frá því að ný ferja var vígð fyrir sjö árum síðan í takt við breytta og aukna atvinnuhætti. Ferðaþjónusta á svæðinu hefur síðan þá sprungið út með tilheyrandi fjölgun farþega og á sama tíma hafa þungaflutningar með ferskan fisk frá fiskeldi á sunnanverðum Vestfjörðum aukist til mikilla muna.

Mikilvægt er að treysta samgöngur um Breiðafjörð. Það er alveg ljóst að Klettsháls verður um langa framtíð illfær að vetrarlagi og þær umbætur sem nú eru á teikniborðinu munu ekki leysa þann vanda. En það eru ekki aðeins útflutningsgreinar sem treysta á samgöngur um Breiðafjörð heldur Vestfirðingar og ferðaþjónustan. Traustar samgöngur eru grundvöllur byggða. Viðhald vega og endurnýjun þeirra og umbætur eru því lykilatriði.

Það tekst vonandi sem best að draga Baldur til hafnar í dag með áhöfn og farþegum heilum á húfi, nú þegar veður er að lægja. En þetta er ekki skemmtileg lífsreynsla fyrir fólk. Það er ljóst að það þarf að útvega nýja ferju sem hentar til siglingar um Breiðafjörð án þess að öryggi farþega sé stefnt (Forseti hringir.) í hættu og þar bera stjórnvöld ábyrgð. Ég skora á samgönguráðherra að taka þetta mál til umfjöllunar.