151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

störf þingsins.

[11:07]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Nefndastörf okkar eru einn mikilvægasti þáttur þingstarfanna og fyrir þingnefndir koma mörg hundruð gesta á hverju þingi og telja þeir sig yfirleitt vita að allt sem þar er sagt verði hvorki gert kunnugt úti í samfélaginu, túlkað né endursagt nema gengið sé frá slíku með tilteknum hætti. Á lokuðum fundum ráða gestir því hve hreinskilnir eða upplýsingaglaðir þeir eru og við þingmenn ráðum því hvernig við bregðumst við traustinu. Það er fráleitt og meira en langsótt að telja að eftirlitshlutverki þingsins eða upplýsingagjöf gesta eða umsögnum um þingmál sé best borgið með því að gestir standi frammi fyrir alþjóð en ekki hópi trúnaðarmanna sem fylgja ljósum reglum. Sjá menn virkilega ekki hamlandi áhrif opinna nefndarfunda sem reglu? Og ég spyr: Við hvers konar ofurgesti er verið að miða?

Jafn fráleit eru orð sem féllu hér í umræðum að nefndarmenn megi, geti eða skuli túlka orð gesta í nafni upplýsingafrelsis eða lýðræðis, jafnvel beint ofan í fjölmiðla. Maður spyr: Gaf viðkomandi gestur þeim leyfi, býst hann fyrir fram við túlkun nefndarmanns, jafnvel þannig að fleiri gestir liggi undir grun um að hafa mælt tiltekin orð? Hvaða tryggingu hafa gestir fyrir því að allir sjö eða níu nefndarmenn skilji, túlki af sanngirni eða jafnvel afflytji ekki orð? Kannski vill gesturinn sjálfur túlka sín eigin orð út á við, vilji hann opinbera þau yfir höfuð. Eða er þingmaðurinn hinn sjálfkjörni dómari um það?

Hlutverk þingmanns er ekki að túlka, opinbera eða útskýra orð gesta þingnefnda heldur að hlusta og gera svo ráðstafanir ef þarf í orðanna ljósi. Nefnd eða þingmaður getur metið einhver orð alvarleg, rætt betur við gestina eftir fund, fengið upplýsingar sem þarf til að sinna máli, gangsett könnun með margvíslegum hætti og opinberað niðurstöður hennar. Furðutalið um leyfilega og opinbera túlkun orða nefndargesta Alþingis er vísasti vegur til þess að grafa undan nefndarstörfum. Svo einfalt er það.