151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

störf þingsins.

[11:10]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Árið 2017 klúðraðist framkvæmd samræmdra könnunarprófa, eins og við munum líklega flest. Á þeim tíma sagði ráðherra, með leyfi forseta: Framkvæmdin mistókst gjörsamlega og er algerlega óásættanleg fyrir íslenskt menntakerfi. Mikil óvirðing við nemendur og kennara. Úr þessu verður bætt. Undir þessi orð ráðherra var hægt að taka. En nú, árið 2021, voru haldin samræmd próf. Hundruð nemenda í níunda bekk náðu ekki að ljúka samræmdu prófunum í íslensku vegna tæknilegra örðugleika. Við getum alveg rætt um það hvort við eigum að hafa samræmd próf eða ekki, það er sérumræða. En prófum í stærðfræði og ensku var síðan frestað. Sami menntamálaráðherra og árið 2018 var ekki lengi að varpa allri ábyrgð yfir á Menntamálastofnun. Það er kunnuglegt stef. Menntamálastofnun stígur hins vegar fram og segist síðan árið 2018 hafa sent menntamálaráðuneytinu 12 minnisblöð, ekki bara eitt heldur 12, vegna framkvæmda prófa frá árinu 2018. Því til viðbótar er búið að skerða framlög til Menntamálastofnunar einmitt til að byggja upp innviðina. Ráðherra mátti vita að kerfið væri ekki fullnægjandi. Gildi samræmdra prófa er, eins og ég segi, síðan allt önnur umræða. Ráðherra vissi af þessu vandamáli og hún ákvað að svara ekki einu af þessum 12 minnisblöðum, og svo firrir hún sig ábyrgð. Hún er blessunarlega búin að aflýsa þessum prófum, sem ég er sammála. Það þarf að tala skýrt. Eftir hennar eigið klúður er hún að reyna að bjarga sér fyrir horn. Hæstv. menntamálaráðherra verður að bera ábyrgð á þessu klúðri sínu.

Það er hins vegar dapurlegt að fylgjast með því að orka ráðuneytisins og ráðherra er núna frekar sett í það að fara af fullum þunga gagnvart einstaklingi, konu sem leitað hefur réttar síns vegna þess að menntamálaráðherra er búin að brjóta á rétti hennar. En það er farið af fullum þunga, öll orkan er sett í það í staðinn fyrir að einblína á það sem þarf að bæta og styðja við, m.a. innviði í íslensku menntakerfi. Þetta er auðvitað ekki boðlegt, virðulegur forseti, ekki fyrir börnin okkar, ekki fyrir menntakerfið og ekki fyrir stjórnkerfið í heild.