151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

störf þingsins.

[11:12]
Horfa

Páll Magnússon (S):

Virðulegur forseti. Það er með miklum ólíkindum ef við höfum búið svo um hnútana hér í þessum sal að lög sem tryggja réttindi starfsfólks við aðilaskipti í rekstri skuli bara gilda þegar rekstur flyst frá ríki til sveitarfélags en ekki frá sveitarfélagi til ríkis. Þessa lagaskýringu notar heilbrigðisráðuneytið núna til að afsaka það að skipa tveimur sveitarfélögum, Vestmannaeyjabæ og Fjarðabyggð, að segja upp yfir 100 starfsmönnum hjúkrunarheimila á þessum tveimur stöðum við aðilaskipti.

Ég hef af þessu tilefni sent heilbrigðisráðherra þrjár spurningar, svohljóðandi, með leyfi forseta: Hvers vegna hefur heilbrigðisráðuneytið gefið Vestmannaeyjabæ og Fjarðabyggð fyrirmæli um að segja upp yfir 100 starfsmönnum í tengslum við aðilaskipti í rekstri hjúkrunarheimila í þessum sveitarfélögum? Hvers vegna var ákveðið að láta lög nr. 72/2002, um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum, ekki gilda í Vestmannaeyjum og Fjarðabyggð í ljósi þess að sama ráðuneyti lét þau lög gilda um sambærilegar tilfærslur á Akureyri og á Höfn í Hornafirði? Og í þriðja lagi: Telur ráðherra að hægt hefði verið að ganga fram með mildari hætti við þessi aðilaskipti í stað þess að grípa til hópuppsagna á landsbyggðinni hjá þessari dæmigerðu kvennastétt sem vinnur við umönnun okkar viðkvæmustu einstaklinga?

Ef það er svo að lagatúlkun heilbrigðisráðuneytisins stenst þá verður að breyta þeim lögum hér í þessum sal.