151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

brottfall ýmissa laga.

508. mál
[11:37]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Bergþór Ólason) (M):

Virðulegur forseti. Ég mun ekki nýta að fullu þær 30 mínútur sem ég hef til að mæla fyrir nefndaráliti um þetta ágæta mál. Þetta er mál sambærilegrar gerðar og hefur komið frá nokkrum ráðuneytum á þessu kjörtímabili og er jákvætt að öllu leyti. Hér er tiltekt í gangi og verið að hreinsa út lög sem eru óvirk og hafa flest verið það um langa hríð.

Allir nefndarmenn umhverfis- og samgöngunefndar eru á því nefndaráliti sem ég mæli hér fyrir og þar sem það er knappt ætla ég að leyfa mér, með leyfi forseta, að fara yfir það í heild sinni. Þetta er sem sagt nefndarálit um frumvarp til laga um brottfall ýmissa laga (úrelt lög), frá umhverfis- og samgöngunefnd.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hildi Dungal frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Nefndinni barst umsögn um málið frá Viðskiptaráði Íslands. Með frumvarpinu er lagt til að á þriðja tug laga sem ekki lengur eiga við eða lokið hafa hlutverki sínu verði felld úr gildi. Um mat á áhrifum segir í greinargerð frumvarpsins að samþykkt þess hefði þau áhrif að auka skýrleika lagasafnsins að því er varðar lög á málefnasviði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Í umsögn Viðskiptaráðs er framlagningu frumvarpsins fagnað og hvatt til þess að víðar verði gripið til slíkrar lagahreinsunar. Nefndin telur jákvætt að ráðherra leggi sig fram um að auka skýrleika lagasafnsins með þessum hætti og leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson og Líneik Anna Sævarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álit þetta með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Sara Elísa Þórðardóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.

Við þetta er í sjálfu sér engu að bæta og ég hvet hæstv. ráðherra allra ráðuneyta til að gera nú lagahreinsun þar sem við á, líka til einföldunar hluta en ekki bara til þess að fella niður óvirk lög eins og hér er gert. En þetta er vissulega skref í rétta átt.