151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

loftslagsmál.

[12:01]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Ég hef nýlega átt nokkur samtöl við fólk í flokknum mínum og víðar um loftslagsbreytingar sem verða aftur stóra ógnin þegar Covid-19 linnir, sem hlýtur að gerast í tiltölulega náinni framtíð. Þá stendur eftir þetta vandamál, loftslagsbreytingar sem eru stærsta ógnin sem mannkynið stendur frammi fyrir, oft vanmetið. Ísland hefur í gegnum tíðina verið land sem stærir sig af náttúruvernd og umhverfissjónarmiðum, í það minnsta þegar kemur að auglýsingum erlendis og í það minnsta í þeirri ímynd sem við viljum byggja upp fyrir fólk utan landsteinanna.

En þegar kemur að loftslagsbreytingum og horft er í hinn kalda veruleika kemur í ljós að við erum vissulega iðnvætt nútímaríki og eigum því okkar syndir í loftslagsmálum. Þótt að við stöndum vel á einhvern hátt, hvað varðar t.d. getu okkar til að nýta endurnýjanlega orku, það að við getum hitað mjög mörg ef ekki flest hús á Íslandi með heitu vatni frekar en rafmagni, sem þarf víða annars staðar að gera eða með gasi eða því um líku, þá verð ég að segja að ég og viðmælendur mínir söknum þess að geta alla vega ekki ímyndað okkur að Ísland sé best í umhverfismálum. Kannski var það aldrei tilfellið að við höfum verið best í umhverfismálum en það var sú tíð, og er vonandi enn, að við vildum vera það.

Ég tek eftir því í umræðum hér á Alþingi og í opinberri umræðu, þegar kemur að viðbrögðum okkar við loftslagsvánni, að það er ýmislegt sem við erum að gera. Við tökum þátt í alls konar alþjóðasamstarfi og þess háttar. En mér hefur fundist vanta metnað fyrir því eða skýra sýn á það að við ætlum okkur að vera best, ekki bara að uppfylla alþjóðlega samninga sem við höfum skrifað undir eða ná einhverjum alþjóðlegum markmiðum eða vera hluti af einhverju teymi sem nær alþjóðlegum markmiðum, sem er allt mjög mikilvægt og gott og ég dreg ekki úr því. Mig langaði að spyrja hæstv. umhverfisráðherra hvort hann hefði kannað hvað þyrfti til þess að við gætum skarað fram úr umfram þær væntingar sem okkur ber að standast samkvæmt samningum, þ.e. þannig að við getum með einhverju móti sagst vera leiðandi í baráttunni við loftslagsvána. Og ef sú athugun hefur farið fram hvort eitthvað hafi komið í ljós sem þyki óraunhæft eða raunhæft (Forseti hringir.) eða hvort greina má einhver sóknartækifæri eða annað.