151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

loftslagsmál.

[12:04]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að hefja umræðu um stærstu áskorun 21. aldar. Það er rétt sem hv. þingmaður kemur inn á hér, að umræðan um loftslagsbreytingar og reyndar umhverfismál hefur legið svolítið niðri núna þegar kórónuveirufaraldurinn hefur verið í gangi og merkir maður það svolítið á fjölmiðlum. En það er mjög mikilvægt að við sem höfum metnað fyrir þessum málum höldum þessu á lofti. Þess vegna þakka ég hv. þingmanni kærlega fyrir umræðuna. Mér þykir áhugaverð nálgun hv. þingmanns að horfa til þess hvernig við getum gert betur, og betur en að gera betur og verið best. Ég held að á sumum sviðum eigum við alveg að geta það. Það má kannski segja að við séum best eða með þeim bestu þegar kemur að þeim þáttum sem hv. þingmaður nefndi hér og snúa að húshitun og rafmagnsframleiðslu með tilliti til gróðurhúsalofttegunda. En ég hef lagt á það áherslu að við horfum fram á við, að við séum ekki bara í fortíðinni að tala um það sem við höfum gert heldur hvað við getum gert. Þar höfum við að mínu mati lagt alveg gríðarlega góðan grunn á þessu kjörtímabili, með fjármagnaðri aðgerðaáætlun sem við stefnum að að standist skuldbindingar okkar og geri betur. Markmið um kolefnishlutleysi árið 2040 er þess háttar markmið.

En hér var spurt: Hvernig getum við skarað fram úr? Ég held að við eigum að geta skarað fram úr á ýmsum sviðum þegar kemur að nýsköpun. Þar er kannski besta dæmið Carbfix-verkefnið sem verið hefur í gangi uppi á Hellisheiði og skapar mögulega gríðarleg tækifæri í framtíðinni til að draga úr losun frá stóriðju og frá jarðvarmavirkjunum eins og staðan er í dag. (Forseti hringir.) Ég held áfram á eftir.