loftslagsmál.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir aftur. Mig langar að bæta aðeins við þar sem ég hætti áðan varðandi þessa nýsköpun. Hér varð að lögum í gær frumvarp mitt um að binda kolefnissambönd í bergið, sem er stór liður í þessu. Ég vil líka nefna að við erum í öðru sæti þegar kemur að nýskráningum rafbíla eða umhverfisvænni bíla þannig að við erum á nokkrum sviðum að teygja okkur í það að vera með þeim bestu. Ég vil bara segja almennt: Ég held að við eigum, varðandi kolefnishlutleysi, að fara að horfa aðeins meira á að skipta því upp. Hvenær ætlum við að ná ákveðnum áföngum þegar kemur að kolefnishlutleysi? Þó að 2040 sé kannski lokatakmarkið þurfum við eftir það að sjálfsögðu að fara yfir í að binda meira en við losum. Ég held líka að við þurfum að horfa svolítið til þess að setja okkur einhver ártöl til viðmiðunar þegar við horfum á einstaka geira, eins og t.d. fluggeirann eða sjávarútveginn, landbúnaðinn, byggingariðnaðinn o.s.frv.
Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa umræðu og vil vera með honum og öðrum í liði með að gera betur og best.