bætur vegna riðu í sauðfé.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og vil segja það við hann að það eru mér ákveðin vonbrigði að málið sé ekki þegar komið til enda, vegna þess að við þekkjum það öll hversu mikið áfall það er fyrir fólk sem lendir í þeim aðstæðum sem greining á riðu er í sauðfjárbúskap. Það er mikið högg og afskaplega erfitt fyrir alla sem því tengjast að ganga í gegnum slíkt áfall. Þegar þetta kom upp í fyrrahaust voru tilmæli mín og óskir til bæði ráðuneytisins og Matvælastofnunar að ganga eins hratt í þetta og unnt væri til að létta á þeim þrýstingi sem eðlilega er á það ágæta fólk sem staðið hefur í þessum búrekstri.
Af því að hv. þingmaður spyr hvernig þetta gangi þá er staðan þannig að samningar eru langt komnir eftir mínum upplýsingum. Við munum fá sérstakan starfsmann inn í ráðuneytið til að sinna þessum málum sérstaklega og yfirfara allt verklag, m.a. með tilliti til þeirra nýju viðfangsefna sem borið hafa uppi. Yfirdýralæknir kemur vonandi í ráðuneytið í næstu viku til að taka þetta allt í gegn. Samningar við bændur hafa dregist, eins og ég gat um áðan, þeir eru langt komnir. Þetta er gríðarlega snúið verkefni vegna þess að sjónarmiðin í þessu eru misjöfn og menn takast á um þær stærðir sem hv. þingmaður nefndi varðandi afurðatjónsbætur og fleiri þætti. Ég kann þetta ekki í neinum smáatriðum en vilji minn stendur til þess að þessu verði lokið eins fljótt og kostur er. Ég þekki ekki nákvæmlega stöðuna á samningunum en ég veit þó að skjöl hafa gengið á milli, drög að samningum og annað því um líkt, þar sem menn skiptast á áherslum varðandi endanlegan frágang.