151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

bætur vegna riðu í sauðfé.

[12:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og vil bæta við í framhaldinu spurningunni: Hver er staðan á endurskoðun reglugerðar varðandi þessi mál sem ráðherra hefur lýst yfir að sé yfirvofandi? Það var í frétt á vef ráðuneytisins 11. nóvember 2020, fyrir réttum fjórum mánuðum síðan, þar sem segir, með leyfi forseta:

„[Ráðherra] hefur sett af stað vinnu í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu við að meta og endurskoða reglur og stjórnsýslu hvað varðar málefni riðu, varnarlínu búfjár, bótafyrirkomulags vegna búfjársjúkdóma og niðurskurðar og regluverk dýraheilbrigðis. […] Áformað er að ráðinn verði verkefnastjóri tímabundið til að sinna þessum verkefnum en áætlað er þeim verði lokið um mitt næsta ár.“

Er þetta í rauninni verkefnið sem ráðherrann vísaði í í fyrra svari sínu varðandi þann starfsmann sem væri kominn í ráðuneytið? Hvernig gengur þessi vinna, því að nú eru ekki nema þrír til fjórir mánuðir fram að miðju ári? Er búið að ráða þennan verkefnastjóra? Telur ráðherrann að það sé raunhæft að þetta verkefni klárist fyrir um mitt ár þannig að það verði tryggilega búið á þessu kjörtímabili?