151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

bætur vegna riðu í sauðfé.

[12:22]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir hér um endurskoðun reglugerða og fleiri þátta, varnarlínu o.s.frv., það er verkefni sem við ætluðum að starta í vetur, strax síðasta haust, en það hefur tekið langan tíma að fá í það einstakling sem kann góð skil á þessu viðfangsefni vegna þess að það er ærið flókið. Þetta er löng saga, mikil krafa um sérhæfingu o.s.frv. Það hefur einfaldlega tekið langan tíma að finna einstakling í þetta, því miður. En nú er hann kominn, eins og ég gat um áðan. Varðandi það hversu vel okkur mun ganga að vinna þetta, þá vona ég að við getum verið með einhverja þætti málsins á hreinu um mitt þetta ár, en ég er ekki á þeim stað núna að geta fullyrt um að verkum verði lokið þá, langur vegur frá. En ég hef lagt á það mikla áherslu í samtölum mínum við bændur og lagt áherslu á samráð við bændur. Sömuleiðis hef ég lagt á það áherslu í samskiptum mínum við Matvælastofnun að þessum málum verði lokið eins fljótt og kostur er og sú áhersla stendur. En því miður hefur ekki gengið hraðar en raun ber vitni.