samræmdu prófin.
Virðulegi forseti. Ég fékk á dögunum línu frá konu einni. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Í gærmorgun fékk ég SMS og símtöl frá dóttur minni, sem ég taldi að væri stödd í miðju prófi í íslensku, um að allt væri í klessu. Það sem gerði mig enn leiðari var að fyrir þremur árum fékk ég nákvæmlega sömu SMS og símtöl frá syni mínum, sem þá átti að vera staddur í þessu sama prófi, en allt var í steik. Að barn þurfi að upplifa það nú þremur árum seinna er óskiljanlegt. Ef þetta hefði gerst hjá hópi fullorðinna einstaklinga held ég að við værum ekki hér á þessum stað þremur árum seinna.“
Með öðrum orðum, herra forseti: Allt í klessu. Nú langar mig að spyrja hæstv. ráðherra fyrir hönd þessarar móður og þúsunda íslenskra foreldra og kennara og allra þeirra barna sem fengu nasasjón af getu hins opinbera: Hvernig gat þetta gerst? Hvernig var hægt að láta þetta gerast aftur? Komið hefur fram í umræðunni að Menntamálastofnun hafi verið kunnugt um ásigkomulag þessa tækjabúnaðar. Af hverju var hann þá notaður? Mætti ég bendi á annan og þrautreyndan tækjabúnað sem e.t.v. hefði komið til greina: Blað og blýant?
Haft hefur verið eftir forstjóra Menntamálastofnunar, Arnóri Guðmundssyni, með leyfi forseta:
„Við höfum sent líklega tólf minnisblöð til ráðuneytisins þar sem við erum að benda á að það þurfi að bregðast við varðandi prófakerfið. Síðast fengum við þau viðbrögð að það yrði ekkert nýtt prófakerfi. Það var bara núna í febrúar.“
Virðulegi forseti. Þetta kallar á svör.