samræmdu prófin.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að segja að við höfum verið að vinna að þessum málum um nokkurt skeið. Um leið og atvikið átti sér stað árið 2018 skipaði ég starfshóp sem hefur skilað til mín tillögum um það hvernig við ætlum að gera þetta til framtíðar. Það er þannig, því miður, og ég harma það, að þegar við leggjum fram rafræn próf getur alltaf eitthvað komið upp á. Það gerðist núna, því miður.
Það sem við höfum verið að vinna með í kjölfarið, ásamt fjölda sérfræðinga, er að við ætlum að þróa matsferil sem gengur út á það að börn geti farið inn í prófin á mismunandi tímabili þannig að svona tæknileg bilun geti ekki átt sér stað. Ég harma það að forstjóri Menntamálastofnunar nefni þetta með þessum hætti vegna þess að hann veit mætavel að hér hefur átt sér stað umfangsmikil vinna um framtíðarstefnu um samræmt námsmat. Það sem við höfum verið að gera er nákvæmlega það að reyna að koma í veg fyrir þetta. Strax árið 2018 fórum við með Menntamálastofnun og létum styrkja kerfin. Og vikuna áður en prófið var haldið var gerð forkönnun á öllu og hún gekk mjög vel. Hins vegar hefur komið í ljós síðustu daga að það er áhætta fólgin í þessu kerfi og ég vil eyða henni.