samræmdu prófin.
Virðulegi forseti. Okkur finnst mjög mikilvægt að allt það umhverfi sem börnin okkar búa við sé öruggt, að við séum ekki að búa til og auka óvissu. Við áttum í miklu samstarfi við allt skólasamfélagið og við lítum á þetta sem ákveðið tækifæri að fara núna frá A til B og þróa þetta enn frekar. Við búum í stafrænum heimi og hv. þingmaður nefnir að við eigum að nota blýantinn, svo sannarlega eigum við að nota hann. Við verðum hins vegar að hafa kerfið þannig að það geti þolað álag. Það gerði það því miður ekki núna og þess vegna segi ég: Þetta er vel ígrunduð ákvörðun. Þetta byggir á þriggja ára vinnu. Þetta byggir á vinnu með öllum fagaðilum og við ætlum að nýta tækifærið og taka skrefið og hafa kerfið þannig að börn og foreldrar og skólasamfélagið geti treyst á það.