151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

ákvörðun um áfrýjun til Landsréttar.

[12:33]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að segja að hér hefur verið staðið faglega að öllu. Á sínum tíma, þegar úrskurður kærunefndar var ljós, leitaði ég mér lögfræðilegrar ráðgjafar vegna þess að mér fannst málið alvarlegt og ég þurfti að skoða það mjög vel. Eitt af því sem fram kemur, í þeim lögfræðiálitum sem ég aflaði mér á sínum tíma, er að það þótti ekki vera nægilega vel rökstutt að ráðherra hefði mismunað viðkomandi aðila byggt á kynferði. Þetta kemur fram í þeim álitum sem ég aflaði mér á sínum tíma.

Hvað varðar fyrirspurn hv. þingmanns þá ráðfærði ég mig við settan ríkislögmann. Um leið og dómurinn kom var farið gaumgæfilega yfir hann og einnig forsendurnar. Mér fannst mjög mikilvægt að gera það. Ég vil líka segja að eitt af því sem ég hef verið að byggja á er að fram hefur komið, til að mynda í áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 6395/2011, að verkefni kærunefndar jafnréttismála væri ekki, með leyfi forseta:

„… að endurmeta hvern hefði átt að ráða í umrætt starf heldur að taka afstöðu til þess hvort [ráðuneytið] hefði brotið í bága við 1. mgr. 26. gr. laga nr. 10/2008 …“

Að sjálfsögðu var málið undirbúið á sínum tíma. Það er mjög brýnt og faglega var staðið að öllu.