151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

barnalög.

11. mál
[12:44]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég tek undir með þeim sem talað hafa hér og fagna því að þetta mál skuli vera komið á þennan stað, það er margt gott í því. Þingflokkur Viðreisnar lagði fyrir þremur árum fram mál um tvöfalt lögheimili sem ég tel reyndar að hafi verið betra, en þetta er sannarlega bæting á núverandi stöðu, með þeirri undantekningu þó að það er illskiljanlegt að þarna skuli hafa verið skildir eftir hagsmunir þess hóps sem menn skyldu ætla að allra fyrst væri gætt að taka utan um, og það eru foreldrar eða aðstandendur og forráðamenn fatlaðra barna og börnin sjálf.

Ég heyri orð hv. þm. Birgis Ármannssonar um að menn þurfi ekki að hafa áhyggjur og hugað verði að þessu síðar en akkúrat í ljósi þess að þessu máli er ekki ætlað að verða að lögum fyrr en í upphafi næsta árs skyldi maður ætla að það hefði verið hægur vandi að klára þetta núna, það er mikilvægt, það eru mikilvæg skilaboð. (Forseti hringir.) Ég verð að segja að þetta er leiðinlegt, og vont að þetta atriði skuli standa út af í þessu annars ágæta máli vegna þess að þetta voru hagsmunir barna sem við hefðum átt að gæta fyrst og fremst.