151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

barnalög.

11. mál
[12:45]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta mál er til bóta en nær því miður ekki nógu langt. Við munum styðja þetta mál og við munum líka styðja fram komna breytingartillögu sem að okkar dómi gengur heldur ekki nógu langt, þannig að milli 2. og 3. umr. mun Miðflokkurinn leggja fram breytingartillögu við þetta frumvarp, þar sem skipt meðlag bætist við réttindi sem foreldrar sem hafa fötluð börn á framfæri hafa. Við teljum að það sé nauðsynlegt í ljósi breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu og breyttrar fjölskyldumyndar. Eins og ég segi, málið er gott, það er til bóta og við styðjum það en boðum breytingartillögu milli 2. og 3. umr.