151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

barnalög.

11. mál
[12:46]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er mál sem margir hafa lengi beðið eftir, sem við erum að fara að greiða atkvæði um. Mér finnst mikilvægt að það komi fram í þessari umræðu að ekki er verið að skerða réttindi neinna með því heldur er einmitt verið að auka þau. Svo á einnig fram að gildistöku laganna, sem er ekki fyrr en 1. janúar 2022, að fara í gegnum ýmsar breytingar sem þarf að gera á öðrum lögum en einnig reglugerðum. Ég er ekki viss um að okkur hafi tekist að vera með algjörlega tæmandi lista í þeirri upptalningu þannig að það er mikilvægt að í þessari vinnu verði haldið vel á málum (Forseti hringir.) og farið mjög gaumgæfilega yfir öll mál. En þetta er gott mál.