151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

barnalög.

11. mál
[12:48]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir að þetta mál er gott og mikilvægt. Þess þá heldur er vont, fyrst langur aðdragandi hefur verið að þessum málum, mörg ár, og gildistaka málsins er síðan ekki fyrr en um næstu áramót, að það skuli ekki ná yfir allar fjölskyldur. Það eru vonbrigði fyrir mína parta að lagt sé fram mál sem nær ekki yfir fjölskyldur með börn með skipta búsetu, börn sem þurfa á stuðningstækjum að halda á báðum heimilum. Ég skil ekki af hverju það tekur hæstv. ríkisstjórn svona langan tíma að skilja nákvæmlega þetta mál. Mér finnst gott að heyra velvild og jákvæðan skilning af hálfu þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. En ég vil þess þá heldur hvetja meiri hlutann til að taka málið til nefndar milli 2. og 3. umr. og breyta nákvæmlega í þá veru sem þau hafa fullan vilja og skilning og hug á að gera. (Forseti hringir.) Ég hvet ríkisstjórnarflokkanna til að fullgera þetta annars ágæta mál (Forseti hringir.) og láta það ná til allra fjölskyldna, ekki síst til barna sem þurfa á stuðningi að halda.