151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

barnalög.

11. mál
[13:00]
Horfa

Katla Hólm Þórhildardóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Mér finnst rosalega erfitt að mér sé sagt að við eigum ekki að hafa áhyggjur af því að þetta verði ekki græjað. Síðan ætlar meiri hlutinn að fella tillöguna en segir: Ekki hafa áhyggjur. Það er bara ekkert vit í þessu, herra forseti. Ég stóð hér í morgun og talaði um hvernig við gætum í sameiningu eflt traust almennings á þingi ef við byrjuðum að breyta stjórnarháttunum og vinna aðeins meira saman en boltinn er hjá ríkisstjórninni með það. Af hverju að fella gott mál en segja síðan: Ekki hafa áhyggjur, við ætlum hvort sem er að gera þetta? Þetta er óþroskað. Þetta eru óheilbrigð stjórnmál. Getum við hætt því?