151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna stuðnings til smærri innlendra áfengisframleiðenda og heimildar til sölu áfengis á framleiðslustað.

495. mál
[15:31]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Orð hv. þingmanna, t.d. í þessari umræðu og í umræðu um áfengismál hér áður, benda til þess að fræðslan hafi ekki náð í gegn þótt hún sé af hinu góða, því miður. Fræðsla verður náttúrlega ekki til góðs ef menn nýta sér hana ekki, bera sig ekki eftir þeim upplýsingum sem eru til og afneita þeim upplýsingum sem eru til á grundvelli þess að það séu bara fordómar, eða ég veit ekki hvað það er. Það kann ekki góðri lukku að stýra, því miður. Ég segi aftur: Ítrekað var reynt fyrir nokkrum árum að koma í gegnum Alþingi sölu á áfengi í öllum matvörubúðum. Menn gáfust upp við að reyna að henda þeirri skjóðu í gegnum gullna hliðið en núna fáum við þetta í teskeiðum. Nú verða hér brugghús sem framleiða allt að hálfri milljón lítra. Þá kemur annar og býður betur og segir: Brugghús sem framleiðir allt að milljón lítra. Þá kemur sá þriðji og segir: Leyfum stærstu brugghúsunum líka að taka þátt í leiknum. Svona er þessi snjóbolti. Kannski er það einhver jafningjaþrýstingur sem verður til þess að menn vilja ganga þennan veg. Í sjálfu sér er ég ekki að halda því fram að lítil, pen brugghús í dreifðum byggðum drepi allan mannskap. Síður en svo, það dettur mér ekki í hug að halda. Mér dettur ekki í hug að halda að 2,3% aukning á framleiddu áfengi á Íslandi komi til með að drepa marga. Málið er að það sem ég óttast, og þess vegna legg ég þetta fram, er að þetta sé fyrsta skrefið á lengri vegferð og vegferðin endi með því að hér verði allt gefið frjálst, þvert á það sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ráðleggur og fleiri, (Forseti hringir.) og við sitjum uppi með aukna áfengisneyslu og skammlífari þjóð.