151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

prestar, trúfélög og lífsskoðunarfélög.

507. mál
[16:32]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Hér er einfalt frumvarp í 28 greinum þar sem í hverri grein falla niður einhver lög, t.d. frá 1736, 1744, 1746, 1759, 1764 o.s.frv. Þetta frumvarp fjallar um sjálfstæði kirkjunnar og í rauninni lífsskoðunarfélaga, þó aðallega kirkjunnar. Núna er í gildi fullt, fullt af lögum um þetta. Tilskipun um húsvitjanir er í uppáhaldi hjá mér. Hún segir að prestar þurfi að koma heim til fólks tvisvar á ári, ellegar hljóta peningasekt. Fyrst er reyndar viðvörun og svo sekt. Sektarféð á að renna til menntunar fátækra barna, nokkuð sem ég held að við séum búin að afgreiða á allt annan hátt. Við krefjumst þess ekki að prestar mæti heim til fólks tvisvar á ári, en samt er til tilskipunin um það síðan 1746, sautján hundruð og súrkál, við erum með svoleiðis lög í gildi, „sautján hundruð og súrkál“-lög.

Þetta frumvarp hefur verið flutt áður, á 149. löggjafarþingi, en ekki var mikill hljómgrunnur fyrir því, sem ég skil ekki, og er það nú endurflutt óbreytt að öðru leyti en að felld voru brott ákvæði sem ekki er lengur þörf á að breyta í kjölfar þess að lög um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (viðbótarsamningur íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar), nr. 153/2019, samþykkt voru á síðasta löggjafarþingi.

Lagt er til að ýmis lög með ákvæðum um presta, trúfélög eða lífsskoðunarfélög falli brott eða taki breytingum. Lögin sem falla brott eða breytast, bæði gömul og ný, eru lagaleg afskipti af því hvernig prestar, trúfélög eða lífsskoðunarfélög haga starfsemi sinni.

Ekki er vitað til þess að önnur trúfélög, eða önnur félagasamtök, séu með starfsreglur sínar skráðar í landslög, umfram almenn lög um slík félög. Lagafrumvarpið jafnar því stöðu Biskupsstofu og sókna landsins á við önnur trúfélög. Með þessu getur þjóðkirkjan einnig einfaldlega breytt reglum sínum á eigin forsendum og án afskipta Alþingis.

Ljóst er líka að margir þeirra lagabálka sem taldir eru upp í frumvarpinu eru löngu úr sér gengnir og eiga ekki lengur við. Meðal þess sem þarna má finna er áðurnefnd skylda presta til að heimsækja öll sóknarbörn sín tvisvar á ári og heimild sem nær eingöngu til biskupa um að undanskilja sóknarbörn frá fermingu. Má því kalla þetta frumvarp lið í tiltekt í lagasafni landsins og einföldun regluverks.

Stærsta breyting þessa frumvarps er niðurfelling laga um sóknargjöld. Í stað þess að innheimta þau með hlutfalli af skatttekjum munu trúfélög landsins þurfa að sjá sjálf um innheimtu sóknargjalda. Munu þau því sjálf geta ákvarðað hversu há sóknargjöldin skulu vera og hvernig innheimta þeirra fer fram. Einnig er trú- og lífsskoðunarfélögum í sjálfsvald sett hvort þau innheimti yfirleitt félags- og sóknargjöld.

Í frumvarpi dómsmálaráðherra sem fjallar um heildarendurskoðun laga um þjóðkirkjuna eru einmitt felld niður velflest af þeim atriðum sem hér um ræðir, ekki reyndar um sóknargjöldin. Þjóðkirkjunni eru einmitt settar reglur og skyldur samkvæmt þeim lögum eins og kveða ber á um samkvæmt stjórnarskrá, að á Íslandi sé þjóðkirkja. Þó að þetta frumvarp kveði á um sjálfstæði kirkjunnar og að ekki séu lagðar neinar starfsskyldur á herðar kirkjunnar í þessu frumvarpi hróflar það samt ekki við ákvæði stjórnarskrárinnar um þjóðkirkju á Íslandi, enda er hægt að uppfylla það ákvæði stjórnarskrárinnar í fjárlögum með t.d. því að ríkið borgi fyrir rekstur biskupsstofu eða eitthvað álíka. Það er hægt að gera á mjög fjölbreyttan hátt öðruvísi en er núna gert með margra milljarða króna samningi sem er í rauninni ekki með neinar sérstakar skilgreiningar á markmiðum þeirrar þjónustu. Ég tel það vera miklu vænlegri leið til að ná markmiðum trúar- og lífsskoðunarfélaga að þau geti einfaldlega ákveðið sjálf hvernig þau haga sínum reglum og hvort þau ákveði að innheimta félagsgjöld eða ekki.

Ég mæli með því að þetta mál gangi til 2. umr. og hv. allsherjar- og menntamálanefndar og vonast eftir góðri afgreiðslu, þá kannski samhliða hinu frumvarpinu um heildarendurskoðun á þjóðkirkju Íslands. Þá getur fólk fengið að velja annaðhvort þetta eða hitt.