aukatekjur ríkissjóðs.
Herra forseti. Stórt skref var stigið í þessum sal þegar Alþingi samþykkti lög um kynrænt sjálfræði, stórt skref í áttina að því að viðurkenna rétt einstaklinga til að skilgreina kyn sitt sjálfir. Um áramótin var opnað fyrir það að fólk gæti valið þriðja valkostinn í skráningu í þjóðskrá. Til viðbótar við karl og konu var kominn þriðji valkosturinn í fellivalmyndinni, merktur: „Kynsegin/annað“. Í framhaldi af því hafa 34 beiðnir um leiðréttingu á skráningu á kyni verið afgreiddar. Það er ágætt að staldra við og óska þessum 34 einstaklingum öllum til hamingju með að mega loksins skrá sig eins og þau vilja. Hins vegar kom dálítið í ljós, á sama tíma og opnað var fyrir þennan skráningarmöguleika, sem ég vil meina að hafi verið mistök hér á Alþingi. Það sem kom í ljós var að fólk sem leiðréttir skráningu kyns og nafns í þjóðskrá þarf að greiða fyrir það 9.000 kr. Mistök, segi ég, vegna þess að ég held að við höfum bara ekki áttað okkur á þessu. Ég held að það geti ekki hafa verið vilji okkar sem samþykktum tímamótalög um kynrænt sjálfræði að nýta tækifærið til að búa til tekjuöflunarmöguleika fyrir ríkissjóð í leiðinni.
Frumvarpið sem ég legg hér fram ásamt ellefu öðrum þingmönnum snýst um að fella brott það ákvæði laga um aukatekjur ríkissjóðs þar sem kveðið er á um 9.000 kr. gjaldtöku Þjóðskrár Íslands vegna leiðréttingar á nafni og skráningu kyns.
Það væri alveg hægt að tína til ýmis rök fyrir því að gera þessa skráningu í þjóðskrá gjaldfrjálsa. Mig langar að nefna helstu rökin sem mér hafa dottið í hug. Í fyrsta lagi snýst þetta um jafnræði. Þetta snýst um það að nafn og kyn eru einu breytingarnar í þjóðskrá sem er tekið gjald fyrir. Ef fólk flytur og breytir skráningu lögheimilis til samræmis við það kostar það ekki krónu. Ef fólk vill breyta því hvert sóknargjöld þess renna þá kostar það ekki neitt, trúfélagaskráning er ókeypis. Ef fólk skráir sig í sambúð í þjóðskrá þá er það líka ókeypis og ef fólk giftist eða skilur, ef hjúskaparstaða þess breytist, þá kostar löggerningurinn hjá sýslumanni mögulega eitthvað en það að breyta skráningunni í þjóðskrá er ókeypis. Það er gjaldfrjálst, að sjálfsögðu. Hvernig getum við þá réttlætt það að af þeim 17 atriðum sem skráð eru í þjóðskrá séu kyn og nafn þau einu sem tekið er gjald fyrir að breyta? Út frá jafnræðissjónarmiðum, forseti, heldur það ekki vatni.
Í öðru lagi skiptir máli, út frá hagsmunum hins opinbera, út frá almannahag, að þjóðskrá sé rétt. Þetta er ein mikilvægasta grunnskrá hins opinbera með grundvallarupplýsingum um alla einstaklinga í landinu. Það eru beinlínis markmið laga um skráningu einstaklinga að skráin sé áreiðanleg og að skráning upplýsinga í þjóðskrá byggist á bestu fáanlegu gögnum á hverjum tíma. Og eins og ég taldi upp áðan er þess gætt þegar fjárhagslegir hagsmunir lögaðila eru annars vegar. Það er gjaldfrjálst að breyta lögheimili enda skiptir það máli upp á tekjuöflun sveitarfélaga, svo nefnt sé dæmi. Það er gjaldfrjálst að breyta skráningu í trúfélag enda byggist tekjuöflun þeirra í gegnum sóknargjöld á þessari skráningu og ýmislegt sem snertir grundvallarréttindi fólks er gjaldfrjálst. En með því að setja gjaldtöku á þessa tvo þætti er búinn til hemill, settur þröskuldur fyrir því að fólk breyti þessari skráningu þannig að hún endurspegli raunveruleikann. Þetta er alger óþarfi þótt ekki væri nema bara vegna þess að bæði í lögum um mannanöfn og í lögum um kynrænt sjálfræði er hemill til staðar. Í báðum lögunum stendur að helst eigi fólki ekki að breyta skráningu kyns eða nafns nema einu sinni þannig að það þarf engan þröskuld, enga kostnaðarvitund hjá notendum, eða hvað fólk vill kalla þetta, til að koma í veg fyrir að fólk breyti um nafn hægri vinstri. Það stendur í lögunum að það megi ekki. Gjaldtakan þjónar því engum tilgangi öðrum en að koma í veg fyrir að fólk sé rétt skráð. Það þjónar ekki almannahag. Það þjónar ekki markmiðum laganna.
Þriðju rökin sem mig langar að nefna, sem eru eiginlega þau sem mér þykir skipta mestu máli, snúast um sanngirni, snúast um að þær 9.000 kr. sem 34 einstaklingar hafa þurft að borga það sem af er ári eru upphæð sem ríkissjóð munar ekkert um, ekki neitt. En þessa einstaklinga getur vel munað um 9.000 kr. Þar langar mig að vísa til ákalls frá Trans Íslandi sem benti á að vegna þeirrar jaðarsettu stöðu sem trans fólk býr við hér á landi, eins og í öðrum löndum, er ekki sjálfsagt mál að það hafi efni á því að borga slíkt gjald af mörgum ástæðum. Trans fólk er t.d. líklegra til að eiga erfitt með að fá vinnu, erfiðara með að fá húsnæði og ganga í skóla sökum mismununar og fordóma þannig að það hefur kannski ekki úr miklu að spila.
Svo er ekki hægt að horfa fram hjá því að trans fólk er oft í dýru ferli. Það þarf að greiða lyfjakostnað og greiða fyrir meðferðir eða aðgerðir tengdar ferlinu sem oft falla að allt of litlu leyti undir þak sjúkratrygginga. Til að bregðast við þeirri stöðu, á meðan Alþingi hefur ekki leiðrétt þessi mistök sín í lögunum, hefur Trans Ísland tekið það að sér að stofna styrktarsjóð fyrir fólk sem vill leiðrétta kynskráningu hjá þjóðskrá, styrktarsjóðinn Blæ, sem hefur fjármagnað fyrir suma af þessum 34 einstaklingum að leiðrétta skráningu kyns í þjóðskrá. Þannig á það ekki að þurfa að vera. Það á einfaldlega að vera þannig að þessi skrá sé ókeypis.
Varðandi sanngirnina má ekki heldur horfa fram hjá því að þegar búið er að leiðrétta skráningu kyns og nafns í þjóðskrá er ýmis annar kostnaður sem hið opinbera mun fá greiddan frá því fólki. Fólk þarf að kaupa sér nýtt vegabréf fyrir 13.000 kr. og ökuskírteini fyrir 8.000 kr. þannig að þessi tilgangslausi 9.000 kr. upphafskostnaður hrúgast ofan á mjög mikinn kostnað sem ekki er sanngjarnt að ríkið auki á.
Virðulegur forseti. Þetta er einfalt frumvarp sem ég vona að nái hratt og vel fram að ganga. Við þurfum að horfast í augu við það að þingið gerði mistök þegar ákveðið var að fólk þyrfti að borga 9.000 kr. til að leiðrétta skráningu kyns. Þetta frumvarp snýst bara um það að leiðrétta mistök og afnema trans skattinn. Trans skatturinn er óréttlátur að því leyti að þetta er eina breytingin á skráningu í þjóðskrá sem gjald er tekið fyrir. Hann er til óþurftar vegna þess að hann leiðir til þess að þjóðskráin verður verri, verður lélegri grunnskrá en ella, og hann er ósanngjarn af því að hann gerir hóp að féþúfu sem við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að styðja við.