151. löggjafarþing — 67. fundur,  16. mars 2021.

atvinnuleysi og staða atvinnuleitenda.

[14:12]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Á tímum eins og þeim sem við lifum nú verður að nota svigrúm hins opinbera vel. Við erum með brothættan gjaldmiðil, við eigum mikla verðbólgusögu og í ábyrgri hagstjórn felst að beina aðstoðinni þangað sem hennar er þörf. Allt frá upphafi höfum við í Samfylkingunni talað fyrir þessu. Þetta er kreppa sem bitnar harðast á mjög afmörkuðum hópum, einstaklingum sem missa vinnuna, og fyrirtækjum, sérstaklega í ferðaþjónustu. Því miður hefur seinagangur og skilningsleysi ríkisstjórnarinnar gert það að verkum að aðstoðin hefur verið með handahófskenndum hætti. Til dæmis þrýsti þetta á Seðlabankann að grípa til aðgerða til að koma peningum í umferð sem urðu svo til þess að þeir flæddu inn á fasteignamarkaðinn, inn á verðbréfamarkaðinn, með tilheyrandi hækkunum þar. Það voru fjármunir sem nýttust best þeim sem voru í góðri stöðu fyrir. Þau sem lentu í vanda gátu hins vegar ekki nýtt þessi úrræði. Þau þurftu á öllu sínu að halda, kláruðu sparifé sitt eða þurftu jafnvel taka lán eða gera aðrar ráðstafanir til að draga fram lífið. Þetta er einfaldlega ekki boðlegt. Í heilt ár hafa aðgerðir ekki beinst nægjanlega vel að þessum hópum. Þeir sem áttu mikið fyrir eiga meira nú. Þeir sem áttu erfitt fyrir eiga erfiðara nú. Í þessari kreppu hefur ójöfnuður aukist. Það var versta staðan sem komið gat upp, en við henni hefur verið varað allan þennan tíma.