atvinnuleysi og staða atvinnuleitenda.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir að vekja máls á þessari mikilvægu umræðu. Það er atvinnuleysi og svarið er: Atvinna, atvinna, atvinna. Núna í kjölfar Covid horfum við upp á verulega erfiða stöðu á atvinnumarkaði. Atvinnuleysi er mismikið meðal ákveðinna hópa og innan ákveðinna landshluta, og hefur ástandið verið sérstaklega erfitt á Suðurnesjum. Aðrir landshlutar hafa sloppið betur. Það er mikilvægt að stjórnvöld grípi atvinnuleitendur með öllum þeim ráðum sem tiltæk eru. Það er mikilvægt að tryggja að við horfum ekki upp á langtímaatvinnuleysi svo árum skiptir ásamt öllu því sem því fylgir.
Þótt um erfiða stöðu sé um að ræða hefur ríkisstjórnin ekki setið auðum höndum. Við þessa umræðu er vert að fagna nýjum aðgerðum Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, sem hann kynnti síðastliðinn föstudag, þ.e. verkefnið Hefjum störf, og tengist því vandamáli sem er hér til umræðu á beinan hátt. Markmið verkefnisins er að tryggja atvinnuleitendum, og þá sérstaklega langtímaatvinnuleitendum, allt að 7.000 tímabundin störf í samvinnu við atvinnulífið, opinberar stofnanir, sveitarfélög og félagasamtök. Þá gætu öll fyrirtæki nýtt sér ráðningarstyrki sem auðvelda atvinnurekendum að ráða starfsfólk og fjölga atvinnutækifærum þeirra sem eru án atvinnu. Einnig fá lítil og meðalstór fyrirtæki nú frekar stuðning til að geta ráðið atvinnuleitendur sem verið hafa án atvinnu í 12 mánuði eða lengur. Einnig fá sveitarfélög, opinberar stofnanir og óhagnaðardrifin félagasamtök sem rekin eru til almannaheilla, sambærilegan styrk.
Virðulegi forseti. Hér er um verðugt verkefni að ræða og háleit markmið um að bæta úr skák og koma þessum málum í betra horf. Nú er búið að mynda umhverfið og þá þurfa viðkomandi aðilar að leggja hönd á plóg í þágu atvinnu. Við þurfum að klára leikinn.