151. löggjafarþing — 67. fundur,  16. mars 2021.

atvinnuleysi og staða atvinnuleitenda.

[14:16]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Atvinnuleysi mælist nú samanlagt í febrúar síðastliðnum 12,5%. Enginn landshluti hefur farið verr út úr þessu heldur en Suðurnesin. Þar mælist atvinnuleysi 24%, sýnu verst í Reykjanesbæ þar sem rúmlega 2.600 manns ganga nú atvinnulausir. Á landinu öllu, ef taldir eru með þeir sem eru í minnkuðu starfshlutfalli, ganga rúmlega 25.000 manns atvinnulausir nú um stundir. Það þarf að bregðast við þessu. Á Suðurnesjum er það aðallega ferðaþjónustan sem hefur legið í láginni og valdið þessu atvinnuleysi. Nú kynnir ríkisstjórnin, herra forseti, nýtt átak, svokallaðar hvataaðgerðir, sem á að skapa 7.000 störf.

Ég spyr: Kemur þetta í staðinn fyrir hlutabótaleiðina? Á að á að hætta við hlutabótaleiðina vegna þessarar nýju leiðar, svokallaðra hvataaðgerða? Af þessu tilefni vil ég minna á það að ríkisstjórnin kynnti með trommuslætti fyrir tveimur árum síðan sérstakt átak til aukinna útgjalda til fjárfestinga. Árangurinn var sá að opinberar fjárfestingar minnkuð um tæp 11% á árinu 2019 og tæp 10% á árinu 2020. Er þarna verið að kynna leið sem er með svipuðum hætti og þessi auknu útgjöld sem urðu síðan stórkostlegur samdráttur? Þegar stórkostlegur samdráttur varð í fjárfestingu atvinnuveganna (Forseti hringir.) ætlaði ríkisstjórnin að hjálpa þar til en árangurinn varð samdráttur.