151. löggjafarþing — 67. fundur,  16. mars 2021.

loftferðir.

586. mál
[17:31]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni, og við í ráðuneytinu höfum fengið að heyra það, vegna þess að við höfum verið að leggja mikla áherslu á flugið með nýrri flugstefnu og tekið meira samtal við hagaðila á þessu sviði, að menn hafa verið að kvarta nokkuð undan íþyngjandi regluverki þegar kemur að minni háttar starfsemi. Við því vil ég kannski fyrst og fremst segja að það er orðið aðkallandi að uppfæra það regluverk sem er verið að gera hér og er mjög umfangsmikið — mig furðar ekki að þingmaðurinn hafi ekki haft tíma til að lesa alla þessa þykku bók — en sumt hér er að verða úrelt og það eru ákveðnar breytingar sem eru almenns eðlis sem ég myndi telja að myndu gagnast smærri aðilum líka, bara við að uppfæra það til núverandi regluverks og skilnings á því alþjóðlega og stóra svæði sem öll Evrópa er. Ég er líka sammála hv. þingmanni að það sé mikilvægt að taka á því og ég beini því til nefndarinnar að skoða það. Ég held að verið sé að gera það. Það var verkefnið, þegar við fórum af stað í þetta, að safna þessu ekki bara saman í stóran lagabálk, sem þetta er, og sameina ákveðna hluti, koma þessu fyrir með betri hætti og innleiða það sem er nýjast, heldur einnig að horfa til þess hvort það gæti verið að þarna leyndust einhverjar séríslenskar reglur sem gerðu okkur erfiðara fyrir en ella. En ég held að verið sé að svara því með því að taka upp móðurgerðina að stærstu leyti, þ.e. það sem á við á Íslandi.