151. löggjafarþing — 68. fundur,  17. mars 2021.

sóttvarnaráðstafanir og bólusetningar gegn Covid-19, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:59]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að reifa sjónarmið sín hér um þessi mál og ekki síst fyrir að benda á þá staðreynd að 92% þjóðarinnar eru ánægð með sóttvarnaráðstafanir þær sem gripið hefur verið til, enda endurspegla þær meðalhóf og yfirvegun og eru minnstu takmarkanir á daglegu lífi sem um getur í Evrópu.

Hv. þingmaður spyr sérstaklega um lýðheilsusjónarmið og vísar til þess að þau sjónarmið hafi verið í tísku einhvern tímann á árum áður. Ég vil fullvissa hv. þingmann um að lýðheilsusjónarmið eru viðfangsefni heilbrigðisyfirvalda og samfélagsins alls á hverjum degi. Það er á þingmálaskrá minni á þessu þingi að leggja fram þingsályktunartillögu um lýðheilsustefnu.

Hv. þingmaður spyr hvort það séu einhver slík verkefni í pípunum sem snúist um að fylgjast með lýðheilsu og mögulega geðheilsuvanda sem kann að hljótast af sóttvarnaráðstöfunum og/eða atvinnuleysi o.s.frv. Þá er því til að svara að ég hef sett í gang tvo stýrihópa í samstarfi við embætti landlæknis og raunar undir forystu embættisins þar sem öðrum er ætlað að vakta sérstaklega lýðheilsuvísa og lýðheilsusjónarmið í gegnum faraldurinn, og ekki bara í gegnum faraldurinn og áhrif af faraldrinum, heldur líka áhrif af sóttvarnaráðstöfunum og síðast en ekki síst af þeim samfélagslegu áhrifum sem við höfum séð alls staðar. Þar er atvinnuleysið langalvarlegast.

Hinn stýrihópurinn vaktar sérstaklega geðheilbrigðismálin vegna þess að við höfum ástæðu til að ætla að þar verði fólk fyrir bæði beinum og óbeinum áhrifum af faraldrinum. Það skiptir mjög miklu máli að vakta þessar mögulegu breytingar jafnharðan en ekki bara þegar faraldurinn er að baki, vegna þess að við þurfum að vera tilbúin að grípa inn jafnóðum og höfum enda gert það og höfum afgreitt hér frá þinginu í sérstökum fjárveitingum 540 millj. kr. á árinu 2020 og annað eins á þessu ári, til þess að styðja betur við geðheilbrigðisþjónustu um allt land.