151. löggjafarþing — 68. fundur,  17. mars 2021.

sóttvarnaráðstafanir og bólusetningar gegn Covid-19, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:25]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar og mikilvægar vangaveltur. Ég held að það sé óendanlega mikilvægt að við sleppum aldrei umræðunni um mannréttindi þegar við tölum um þessi mál, ég er sammála þingmanninum um það. Hins vegar lít ég svo á að sem betur fer séum við öll hér á Alþingi fylgismenn mannréttinda, og ég held að það gildi um mikinn meiri hluta þjóðarinnar. Það er það sem einkennir sem betur fer íslenskt samfélag, að vera samfélag sem vill kenna sig við mannréttindi.

Hv. þingmaður spyr, ef ég skil spurningarnar rétt, um samspil einstakra sóttvarnaráðstafana við markmið aðgerðanna á hverjum tíma og það hvernig tekin er ákvörðun um tiltekna aðgerð á hverjum tíma og hvort við séum að safna upp reynslu eins og faraldrinum vindur fram. Eins og sóttvarnalæknir segir sjálfur þá eru auðvitað á öllum tímum fjölmargar aðgerðir í gangi og það getur verið býsna snúið að finna út úr því hvaða árangri við náum með 2 metra reglu, hvaða árangri við náum með sprittun, hvaða árangri við náum með grímu, með fjöldatakmörkunum o.s.frv., af því að þetta eru aðgerðir sem spila allar saman. Þær eru hins vegar allar saman byggðar á þekkingu á faröldrum og hvernig þeir haga sér, og smátt og smátt á þekkingu á Covid-19 og hvernig sá faraldur hagar sér. Eftir því sem bólusettum fjölgar í samfélaginu er eðlilega minni þörf á sóttvarnaráðstöfunum innan lands enda er það hluti af þeim sjónarmiðum sem liggja til grundvallar tillögum sóttvarnalæknis til mín. En markmiðin hafa alltaf verið fyrst og fremst tvö, annars vegar að verja viðkvæmustu hópana, og þar sjáum við röðina í bólusetningar, og hins vegar að gæta að því að heilbrigðiskerfið okkar standist álagið.