151. löggjafarþing — 68. fundur, 17. mars 2021.
útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
602. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra kærlega fyrir svörin og sérstaklega um það sem er breytt að hennar mati í þessu frumvarpi. Í framhaldi af svörum hennar vil ég spyrja hana: Er það markmið hæstv. ráðherra að mýkja þetta ferli, að auðvelda því fólki sem er í neyð og þörf fyrir aðstoð að koma hingað til lands, með vísan í þær breytingar sem hún útlistar hér?