151. löggjafarþing — 69. fundur,  18. mars 2021.

greitt verð fyrir loðnu.

[13:04]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Forusta Sjómannasambandsins telur brýnt að kanna hvernig standi á því að ríflega tvöfalt hærra verð hafi verið greitt fyrir loðnu sem landað var úr norskum skipum hér á landi en fyrir loðnu úr íslenskum skipum sem þó var vel að merkja í hærri gæðaflokki. Þetta segir m.a. Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. Hann segir sjómenn vilja að þetta verði skoðað svo að skera megi úr um það hvort áhafnir íslensku skipanna hafi verið hlunnfarnar.

Við höfum áður upplifað, virðulegi forseti, svipaðan verðmun í löndun á makríl. Þetta er því engin nýlunda og það er óþolandi. Eðlilega verðum við að fá að vita af hverju hægt er að borga norskum skipum 220–230 kr. á kíló fyrir loðnu sem er ekki eins verðmæt og loðnan á íslensku skipunum meðan íslensk skip fá bara um 100 kr. á kílóið.

Hér eru eðlilega miklir hagsmunir í húfi. Þetta er saga tortryggni, virðulegi forseti, lítils trausts og lítils gegnsæis. Sjómannadeilan harða 2017 var ekki síst jafn hörð og heiftug og erfið nákvæmlega vegna þessara þátta. Og þótt samningar milli sjómanna og útgerða eigi að heita frjálsir eiga sjómenn ekki margra annarra kosta völ að sögn Valmundar, formanns Sjómannasambandsins. Í upphafi vertíðar sé sjómönnum einfaldlega sýndur pappír og sagt: Hérna er verðið sem þið fáið fyrir þetta. Hann segir að skipverjum sé síðan bara stillt upp við vegg og þeir óttist í sumum tilfellum um plássið sitt.

Laun sjómanna reiknast sem hlutfall af aflaverðmæti og því eru miklir hagsmunir í húfi fyrir þá. Við þurfum að efla Verðlagsstofu enn frekar. Hún þarf að hafa burði til að bera saman afurðaverð á erlendum mörkuðum og afurðaverð héðan úr landi. Þetta væri ekki bara fyrir sjómenn, því að hagsmunirnir liggja víðar. Þjóðin, ríkissjóður og sveitarfélög eru hlunnfarin um skatttekjur og hafnargjöld. Ég vil því spyrja hæstv. sjávarútvegsráðherra: Hvað ætlar hann að gera til þess að skýra myndina, svara sjómönnum og laga þetta fyrir alla?