greitt verð fyrir loðnu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Eins og hún þekkir ágætlega og jafn vel og ég þá er þetta ekki nýtt mál til umræðu og nýtt deiluefni, það á sér mjög langa sögu. Við deilum örugglega bæði þeirri skoðun að verðlagningin á loðnu og öðrum sjávarafurðum sé ekki á forræði stjórnvalda heldur fyrst og fremst á forræði sjávarútvegsfyrirtækjanna og sjómanna sjálfra. Það er spurning hvernig hægt er að greiða úr þessari stöðu. Það hefur verið tekist á um það verkefni í mjög langan tíma og að allra mati er þetta slæm staða. Þetta leiðir af sér tortryggni, skapar vantraust á milli aðila og er engum til góða. Ég hef kallað eftir því frá báðum aðilum þessarar deilu að það þurfi að útskýra þennan mismun, leggja fram gögn og reyna að eyða þeirri tortryggni sem uppi er í þessu máli því að staða þess er algerlega óþolandi.
Það sem ég hef gert, og ég hef greint frá því áður hér, er að ég hef beitt mér í því, og gerði það síðast haustið 2019 innan norræns samstarfs, að það yrði framkvæmdur samanburður á kjörum og launakerfum sjómanna í hinum norrænu ríkjum. Það verkefni fór í gang og það leiðir íslenskur hagfræðingur, Daði Már Kristófersson. Það hefur tafist vegna Covid en ég er upplýstur um að því eigi að ljúka á þessu ári. Verkefnið er á þann veg að það á að greina og lýsa launakerfum í sjávarútvegi, norrænum sjávarútvegi og í norrænum ríkjum, þannig að við getum séð betur hvernig þessi skipti á milli útgerðar og sjómanna eru. Hugsunin var sú, virðulegi forseti, að nýta niðurstöður þessa verkefnis til að geta tekið umræðuna inn í íslenskt samfélag. Ég bind vissulega vonir við að þetta verkefni nái fram að ganga og við getum dregið af því einhvern lærdóm og myndi vilja gjarnan að hægt væri að styðjast við einhverja slíka greiningu til að takast á við þetta gamalgróna deiluefni.