greitt verð fyrir loðnu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra svörin. Vissulega er þetta ekki nýtt deiluefni. Í verkfallsaðgerðunum árið 2017 samþykktum við einmitt að efla Verðlagsstofu skiptaverðs en það virðist ekki duga núna. Útgerðarfyrirtækin, eins og það lítur út fyrir núna, eða verktakinn virðist í rauninni geta ákveðið sjálfur einingaverðið sem hann síðan gefur upp. Þá er hægt að spyrja: Hvert fer mismunurinn? Ég held að ráðherra verði m.a. aðeins að hugsa það. Útgerðarfyrirtækin — og ég vil brýna þau — verða að svara kalli tímans um gegnsæi, um traust og um réttlæti, hvort sem litið er til eðlilegrar hlutdeildar þjóðarinnar í auðlindinni okkar eða skýrra reglna um raunverulegt eignarhald sjávarútvegsfyrirtækjanna. Og auðvitað í þessu máli hvert afurðaverðið er í raun og veru. Þær aðstæður eru að mínu mati algerlega óboðlegar fyrir sjómenn að standa frammi fyrir þessu aftur og aftur. Eftir reynsluna á sínum tíma held ég, kæri sjávarútvegsráðherra og virðulegi forseti, að við leysum þetta ekki nema það verði pólitískur vilji sem segir nákvæmlega hvernig hlutirnir eigi að vera. (Forseti hringir.) Það er ekki viðunandi að mínu mati að útgerðin sé alltaf með þetta ægivald gagnvart sjómönnum. (Forseti hringir.) Þetta verður að leiðrétta. Metnaðurinn og hagsmunirnir eru til staðar (Forseti hringir.) og við verðum að ýta á þetta verði leiðrétt sem allra allra fyrst.