greitt verð fyrir loðnu.
Virðulegi forseti. Ég þakka kæra kveðju frá hv. þingmanni. Ég held að pólitíski viljinn sé hinn sami, hvar svo sem við stöndum í flokki. Við viljum bara að þessir hlutir séu í lagi og við viljum gjarnan vita sem mest um hvort einhver skynsamleg skýring er á mismunandi verðlagningu. Hinn pólitíski vilji liggur þar af leiðandi fyrir því að kalla eftir þeim upplýsingum sem við gerum kröfu um. Ég taldi vissulega, og ég skal alveg viðurkenna það, að því fyrr sem ég fengi niðurstöður þessa norræna verkefnis, því betur væri grundaðar sá pólitíski styrkur sem yrði lagður í það að gera kröfu um upplýsingar. Því miður hefur það verkefni dregist, en ég bind mjög miklar vonir við að við getum þá staðið á fastari grunni til að gera þessa kröfu, sem mér finnst vera fullkomin eining um. En því miður hefur það ekki gengið. Ég vil nefna það til viðbótar, vegna þess að ég kom því ekki að í fyrra svari mínu, að við megum heldur ekki gleyma því að skattyfirvöld hafa líka ákveðin tæki til að setja reglur um t.d. verðlagningu innan og milli fyrirtækja.