Garðyrkjuskóli ríkisins.
Virðulegur forseti. Það er hárrétt sem fram kemur í máli hv. þingmanns um að við viljum efla innlenda framleiðslu og við leggjum mikla áherslu á það. Mjög stór þáttur í því er auðvitað að efla allt nám sem tengist garðyrkju og vernda það og huga að því, eins og við höfum verið að gera. Við höfum lagt upp með það að efla starfsnámið á Suðurlandi og gera það í samvinnu við alla hagaðila. Við vinnum að því núna á hverjum einasta degi í mennta- og menningarmálaráðuneytinu að upplýsa um gang mála og hvernig við getum gert þetta þannig að það sé farsælt. Við viljum efla Suðurlandið. Þar er atvinnuvegurinn, garðyrkja, auðvitað mjög öflugur og við vinnum með hagaðilum. Við hlustum líka að sjálfsögðu á nemendur og kennara og vinnum þetta í samvinnu við þá. Við munum tryggja að það verði vöxtur í greininni.